Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. október 2011 19:52
Alexander Freyr Tamimi
Spánn: Barcelona með nauman sigur
Adriano skoraði fyrir Barcelona.
Adriano skoraði fyrir Barcelona.
Mynd: Getty Images
Sporting Gijon 0-1 Barcelona
0-1 Adriano ('12)

Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona voru allt annað en sannfærandi þegar þeir sóttu Sporting Gijon heim í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Börsungar gerðu þó nóg til að tryggja sér stigin þrjú, en lokatölur í leiknum voru 1-0. Brasilíumaðurinn Adriano skoraði eina mark leiksins, en það kom á 12. mínútu. Þetta var hans fyrsta deildarmark fyrir Barcelona, en hann kom til liðsins frá Sevilla í fyrra.

Með sigrinum fór Barcelona upp í efsta sæti deildarinnar, þar sem þeir eru ásamt Levante með 14 stig. Real Madrid mun hins vegar mæta Espanyol síðar í kvöld, en þeir eru með 10 stig eftir fimm leiki.


banner
banner
banner
banner