Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mán 03. október 2011 12:30
Fótbolti.net
Slúðurpakki úr íslenska boltanum
Kristinn Steindórsson er samningslaus og er orðaður við FH og KR.
Kristinn Steindórsson er samningslaus og er orðaður við FH og KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jakob Hallgeirsson sem hér er í leik með ÍR fyrir nokkrum árum er orðaður við þjálfarastöðuna hjá félaginu.
Jakob Hallgeirsson sem hér er í leik með ÍR fyrir nokkrum árum er orðaður við þjálfarastöðuna hjá félaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grétar Ólafur Hjartarson er orðaður við uppeldisfélag sitt, Reyni Sandgerði.
Grétar Ólafur Hjartarson er orðaður við uppeldisfélag sitt, Reyni Sandgerði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að fyrsta slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.

Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.

Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].

KR: Haukur Heiðar Hauksson hægri bakvörður KA hefur náð samkomulagi við Íslandsmeistara KR. Kristinn Steindórsson, leikmaður Breiðabliks, gæti einnig farið í KR. Tryggvi Guðmundsson er orðaður við KR og Brynjar Björn Gunnarsson gæti komið í Vesturbæinn þegar samningur hans við Reading rennur út næsta vor. Gunnar Örn Jónsson gæti yfirgefið KR en hann átti ekki fast sæti í sumar. Orri Sigurður Ómarsson, sextán ár HK-ingur, fer líklega í KR og fleiri ungir og efnilegir leikmenn gætu gert það sama.

FH: Líklegt er að aðstoðarþjálfaraskipti verði í Hafnarfirði. Guðlaugur Baldursson, fyrrum þjálfari ÍR, er orðaður við aðstoðarþjálfarastöðuna. Óvissa er með kantmennina Atla Guðnason og Ólaf Pál Snorrason og þá gætu Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Guðmundur Sævarsson einnig verið á förum. Hafsteinn Briem, miðjumaður HK, er orðaður við FH og fleiri lið. Kristinn Steindórsson er líka orðaður við FH-inga en hann gæti verið á förum frá Breiðabliki.

ÍBV: Eyjamenn eru í leit að markverði og Ingvar Þór Kale hjá Breiðabliki er sterklega orðaður við félagið. Einnig hefur verið orðrómur um að Óskar Pétursson, Fjalar Þorgeirsson og Daði Lárusson gætu komið. Alexander Magnússon hægri bakvörður Grindvíkinga er einnig á óskalista Eyjamanna. Heimir Hallgrímsson fyrrum þjálfari Eyjamanna er eftirsóttur en ein kjaftasagan segir að hann sé á leið í þjálfaralið Portsmouth. Sögur hafa verið uppi um að Tryggvi Guðmundsson gæti verið á förum á fasta landið og þá gæti Finnur Ólafsson einnig verið á förum.

Stjarnan: Óvíst er hvort Þorvaldur Árnason haldi áfram. Stjörnumenn eru stórhuga fyrir næsta sumar og munu líklega halda dönsku leikmönnunum. Þá vilja þeir fá Gunnar Örn Jónsson frá KR.

Valur: Ólíklegt er að færeysku leikmennirnir verði áfram þó vilji sé hjá Val að halda bakverðinum Jónasi Tór Næs. Valur vill fá Orra Sigurð Ómarsson frá HK og hefur einnig áhuga á Hafsteini Briem hjá HK og Hilmari Rafni Emilssyni sóknarmanni Hauka. Atli Arnarson, ungur miðjumaður hjá Tindastól/Hvöt, er einnig á óskalista Vals.

Breiðablik: Óvist er hvort miðverðirnir Kári Ársælsson og Þórður Steinar Hreiðarsson verið áfram hjá Breiðabliki og Mark Rutgers hjá Víkingi gæti komið í vörnina. Stefán Gíslason æfði aðeins með Blikum í sumar og er mikill áhugi í Kópavoginum að reyna að klófesta hann. Þá vilja Blikar fá Gunnar Örn Jónsson aftur í Kópavoginn. Bjarki Baldvinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson úr Völsungi, Viggó Kristjánsson úr Gróttu og Andri Fannar Freysson úr Njarðvík hafa einnig æft með Blikum undanfarna daga. Tryggvi Guðmunfsson er orðaður við Breiðablik.

Fylkir: Óvissa með Jóhann Þórhallsson og Baldur Bett. AC Milan og AGF hafa áhuga á miðjumanninum unga Hirti Hermannssyni. Fylkismenn eru í þjálfaraleit og í því samhengi hafa Páll Einarsson, Ásmundur Arnarsson, Guðlaugur Baldursson, Zoran Miljkovic, Guðjón Þórðarson og Sverrir Sverrisson allir verið nefndir.

Keflavík: Zoran Daníel Ljubicic gæti tekið við Keflavík en hann hefur þjálfað yngri flokka félagsins undanfarin ár með góðum árangri. Gunnar Oddsson gæti verið honum til aðstoðar. Nokkrir fastamenn eru samningslausir og þar á meðal er óvíst hvort Guðmundur Steinarsson verði áfram.

Fram: Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, besti leikmaður Hamars í sumar, gæti komið aftur í Safamýrina en hann er uppalinn hjá Fram. Hafsteinn Briem, miðjumaður HK, ku vera á óskalista Framara.

Grindavík: Markvörðurinn Óskar Pétursson hefur verið orðaður við ÍBV eftir frábæra frammistöðu hans seinni hluta sumarsins. Jamie McCunnie hugsar sér víst til hreyfings og þá gæti Scott Ramsey farið í Reyni Sandgerði.

Þór: Atli Sigurjónsson er einn feitasti bitinn á markaðnum og gæti jafnvel farið út fyrir landsteinana. Þá hafa lið í Pepsi-deildinni áhuga á Gísla Páli Helgasyni. David Dizstl og Clark Keltie eru á förum.

Víkingur R.: Þónokkrar hræringar gætu orðið í leikmannamálum í Víkinni. Björgólfur Takefusa og Mark Rutgers eru á förum og Baldur Ingimar Aðalsteinsson gæti lagt skóna á hilluna. Einnig er ekki ósennilegt að Halldór Smári Sigurðsson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson og Marteinn Briem leiti á önnur mið. Víkingar eru með menn í sigtinu eins og Fannar Þór Arnarsson úr Leikni.

ÍA: Óvíst er hvort Guðjón Heiðar Sveinsson verði með Skagamönnum næsta sumar en hann fer mögulega út í nám. Eyþór Helgi Birgisson gæti gengið til liðs við ÍA frá HK.

Selfoss: Arilíus Marteinsson er á förum frá Selfyssingum. Björgólfur Takefusa og Pape Mamadou Faye eru orðaðir við Selfyssinga. Babacar Sarr er til reynslu hjá liðum í Skandinavíu og ef hann verður seldur þurfa Selfyssingar að fá sér öflugan miðjumann í hans stað.

Haukar: Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Haukum. Þá segir sagan að Sigurbjörn Hreiðarsson verði spilandi aðstoðarþjálfari hans. Ásgeir Þór Ingólfsson hefur áhuga að spila í Pepsi-deildinni næsta sumar og gæti verið á förum frá Haukum. Hjörtur Júlíus Hjartarson og Reynir Leósson eru orðaðir við Hauka en þeir eru á förum frá ÍA.

Víkingur Ó.: Ólafsvíkingar stefna á að fá enska leikmenn til liðs við sig fyrir næsta tímabil. Miðjumaðurinn Helgi Óttarr Hafsteinsson er líklega á förum.

Fjölnir: Grafarvogsliðið hefur áhuga á að fá Andra Stein Birgisson frá Keflavík og markaskorarann Hjört Hjartarson frá ÍA.

BÍ/Bolungarvík: Ottó Marinó Ingason, leikmaður Fjölnis, er orðaður við Skástrikið. Félagið hyggst fækka erlendum leikmönnum fyrir næsta tímabil. Ekki er orðið ljóst hvort Guðjón Þórðarson haldi áfram með liðið.

KA: Jóhann Helgason gæti verið á leið aftur til Akureyrar og gengið í raðir KA. Þá gæti sóknarmaðurinn David Disztl komið aftur frá Þór.

ÍR: Líklegt er að Árni Freyr Guðnason fari frá ÍR og fleiri leikmenn gætu einnig verið á förum. Jakob Hallgeirsson, fyrrum leikmaður liðsins og núverandi þjálfari 2. flokks félagsins, er orðaður við þjálfarastöðuna en Guðlaugur Baldursson er hættur. Einnig hafa Jörundur Áki Sveinsson, Njáll Eiðsson, Guðmundur Benediktsson, Reynir Leósson og Tómas Ingi Tómasson verið orðaðir við starfið. Reynir ku þó hafa hafnað tilboði frá ÍR-ingum.

Leiknir: Pape Mamadou Faye er hættur hjá Leikni sem hefur áhuga á Hirti Hjartarsyni eins og fleiri lið í 1. deildinni. Óvissa er í þjálfaramálum en ekki er ljóst hvort Zoran Miljkovic haldi áfram með liðið.

Grótta: Ekki er orðið ljóst hvort Sigurður Helgason haldi áfram sem þjálfari. Viggó Kristjánsson gæti farið í Breiðablik og þá er Andri Björn Sigurðsson líklega einnig á förum. Sölvi Davíðsson liggur undir feldi eftir fallið.

HK: Margir leikmenn gætu komið til HK úr varaliði félagsins Ými. Uppaldir leikmenn HK gætu verið á heimleið og þá hefur félagið áhuga á Agli Atlasyni. Ljóst er að margir sterkir leikmenn munu yfirgefa skútuna.

Tindastóll/Hvöt: Ólíklegt er að erlendu leikmennirnir verði áfram. Atli Arnarson er á óskalista Vals.

Höttur: Einhver orðrómur hefur verið um að Ívar Ingimarsson muni koma og leika með Hetti þegar hann kemur heim úr atvinnumennsku á Englandi.

Reynir S.: Grétar Ólafur Hjartarson gæti komið til uppeldisfélagsins frá Keflavík og Scott Ramsay gæti komið frá Grindavík en hann fór feril sinn hér á landi í Sandgerði. Vinstri bakvörðurinn Hafsteinn Rúnar Helgason gæti einnig komið aftur til Reynis frá Stjörnunni.

Dalvík/Reynir: Dragan Stojanovic, fyrrum þjálfari Þór/KA, gæti tekið við Dalvík/Reyni.

Hamar: Sævar Þór Gíslason hefur fengið tilboð um að gerast þjálfari hjá Hamarsmönnum.

KFR: Nýliðar KFR í annarri deildinni vilja fá Andy Pew og Guðmund Garðar Sigfússon frá Árborg.

Magni: Atli Már Rúnarsson gæti tekið aftur við Magna en hann hætti með Dalvík/Reyni á dögunum eftir tveggja ára starf.
Slapp
banner
banner