Árni Freyr Guðnason, leikmaður ÍR, hefur áhuga á að leika í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Undanfarin ár hefur Árni oft verið orðaður við félög í Pepsi-deildinni og í haust hefur hann meðal annars verið orðaður við nýliða ÍA og Selfoss.
Undanfarin ár hefur Árni oft verið orðaður við félög í Pepsi-deildinni og í haust hefur hann meðal annars verið orðaður við nýliða ÍA og Selfoss.
,,Ég er með samning en hugurinn leitar í Pepsi-deildina," sagði Árni Freyr við Fótbolta.net í dag en hann er samningsbundinn ÍR út árið 2012.
Árni, sem leikur framarlega á miðjunni, var fyrirliði ÍR-inga í fyrstu deildinni í sumar en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá ÍR undanfarin ár.
Í sumar skoraði Árni átta mörk í 16 leikjum með ÍR en hann hefur samtals skorað 50 mörk í 79 deildar og bikarleikjum með liðinu.
Árni, sem er uppalinn hjá FH, hefur einnig leikið með Reyni Sandgerði hér á landi en hann lék þar sumarið 2007.




