„Ég hef heyrt af áhuga nokkurra liða og finnst þau öll mjög áhugaverð," segir Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Fylkis. Samningur hans við Árbæjarliðið er að renna út.
„Mín mál standa frekar opin. Ég ætla að bíða og sjá hver tekur við Fylki og svo talar maður við hann og sér hvað er að fara að gerast hjá þeim."
„Ég er ekkert að stressa mig á þessu og ætla ekkert að flýta mér. Ég ætla að gefa mér tíma til að hlusta á hugmyndirnar hjá þessum liðum sem hafa áhuga og svo hvað Fylkir ætlar að gera," segir Albert Brynjar.
Sögur hafa verið á lofti um að ÍBV og Valur hafi áhuga á að fá Albert í sínar raðir en hann lékmeð Hlíðarendaliðinu 2008. Þá hefur hann einnig verið orðaður við Breiðablik.
Albert skoraði níu mörk í Pepsi-deildinni í sumar.




