Heimild: BBC
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sagði eftir 1-1 jafnteflið gegn Manchester Unitd í dag að hann hafi ætlað að setja boltann yfir varnarvegg gestanna á Anfield í dag þegar hann skoraði sigurmarkið en hafi mistekist. Þess í stað fór boltinn í gegnum vegginn og lenti í markinu.
,,Þetta var ekki mín besta aukaspyrna," útskýrði Gerrard í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.
,,Ég var að reyna að koma honum yfir vegginn. Kannski var þetta heppnin sem ég var að leita eftir. Ég er mjög ánægður með það."
Manchester United náði að jafna metin og því munurinnn á liðunum áfram sex stig.
,,Markmiðið var að minnka muninn niður í þrjú stig en við náðum því bara ekki," sagði Gerrard.
,,Ég er viss um að stuðningsmönum okkar finnst þetta ósanngjarnt. Við vorum að spila gegn besta liði deildarinar svo þetta hlýtur að vera sanngjarnt."



