Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 10. nóvember 2011 15:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Giovani dos Santos ætlar að fara frá Tottenham
Giovani dos Santos ætlar að reyna að yfirgefa herbúðir Tottenham þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Þessi 22 ára gamli Mexíkói kom til Tottenham frá Barcelona árið 2008 en hann hefur alls ekki staðist væntingar á Englandi.

Dos Santos hefur lítið fengið að spila hjá Spurs og hann hefur farið til Ipswich, Galatasaray og Racing Santander á láni.

,,Sem leikmaður þá viltu alltaf spila meira. Ég hef verið hjá Tottenham í tvö og hált ár og ekki fengið þann spiltíma sem ég vil fá," sagði dos Santos.

,,Það er erfitt að segja að ég vilji fara því ég er samningsbundinn félaginu og ég vil ekki ræða þetta mikið. Það sem ég get sagt er að ég hef fengið nokkur tilboð þó ég sé ekki að spila mikið en ég verða að bíða fram í janúar."
Slapp
banner
banner