Breiðablik vonast til að semja við varnarmanninn Guðmann Þórisson en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er uppalinn Bliki en hann hefur leikið með Nybergsund í Noregi undanfarin tvö ár.
Nybergsund féll úr norsku fyrstu deildinni á dögunum en Guðmann er laus allra mála frá félaginu.
,,Við erum aðeins búnir að ræða málin. Hann er fínn spilari til að fá í hópinn og hann myndi styrkja liðið," sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks við Fótbolta.net í dag.
Viggó Kristjánsson úr Gróttu og Sindri Snær Magnússon úr ÍR hafa einnig æft með Blikum að undanförnu en ekki er ljóst hvort þeir muni semja við félagið.




