Luis Suarez, hinn umdeildi sóknarmaður Liverpool, fær sitt pláss í ensku pressunni á morgun þriðjudag.
Eftir 1-0 tapið gegn Fulham í kvöld náðist á mynd þar sem Suarez virðist vera að sýna stuðningsmönnum Fulham miðfingurinn.
Eftir 1-0 tapið gegn Fulham í kvöld náðist á mynd þar sem Suarez virðist vera að sýna stuðningsmönnum Fulham miðfingurinn.
Bæði The Sun og Daily Mirror birta mynd af Suarez þar sem hann sést ganga af velli með puttann á lofti.
Nú þegar hefur skapast mikil umræða um atvikið á netinu en skjáskotið hér til hliðar er af baksíðu The Sun á morgun.