Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 10. desember 2011 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Warnock: Luis Suarez var magnaður í dag
Warnock á hliðarlínunni í dag.
Warnock á hliðarlínunni í dag.
Mynd: Getty Images
Neil Warnock knattspyrnustjóri QPR var ánægður með sína menn þrátt fyrir að hafa tapað 1-0 fyrir Liverpool á Anfield í dag en Luis Suarez skoraði eina markið í leiknum með skalla.

,,Við vorum frábærir," sagði Warnock eftir leikinn við fjölmiðlamenn.

,,Luis Suarez var magnaður og það var viðeigandi að besti leikmaðurinn á vellinum skoraði, við misstum af honum, en það er það sem góðir leikmenn gera."

,,Við náðum aldrei að reyna almennilega á Pepe Reina en ég get ekki kennt neinum um, og að þeir hafi verið að naga neglurnar síðustu tíu mínúturnar er vitnisburður um liðið,"
sagði Warnock sem hrósaði markverði sínum.

,,Radek Cerny (markvörður QPR) er topp atvinnumaður. Hann verðskuldaði ekki að vera í tapliðinu."
banner
banner
banner