Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. desember 2011 12:39
Magnús Már Einarsson
Barcelona örugglega áfram í úrslit á HM félagsliða
Maxwell skoraði fjórða markið.
Maxwell skoraði fjórða markið.
Mynd: Getty Images
Al Sadd 0 - 4 Barcelona
0-1 Adriano ('25)
0-2 Adriano ('43)
0-3 Seydou Keita ('64)
0-4 Maxwell ('81)

Barcelona mun mæta Santos frá Brasilíu i úrslitaleik HM félagsliða í Japan á sunnudag en þetta varð ljóst eftir öruggan 4-0 sigur spænska liðsins á Al Sadd frá Katar í undanúrslitunum í morgun.

Barcelona varð fyrir áfalli í leiknum því David Villa framherji liðsins fótbrotnaði rétt fyrir leikhlé.

Þrátt fyrir það áttu Börsungar ekki í vandræðum með að skora í dag. Adriano skoraði tvívegis i fyrri hálfleik fyrra mark hans var nokkuð skondið. Pedro átti fyrirgjöf sem fór í Nadir Belhadj og þaðan á markvörðinn Mohamed Saqr sem skaut í Adriano og inn.

Í síðari hálfleik bættu Seydou Keita og Maxwell við mörkum og öruggur sigur Börsunga í höfn.
banner
banner
banner