Ásgeir Gunnar liggur undir feldi
Bakvörðurinn Guðmundur Sævarsson er hættur í FH. Þetta hefur hann staðfest í samtali við Fótbolta.net. Hann hefur allan sinn feril leikið fyrir FH en síðasta sumar lék hann tólf leiki og skoraði eitt mark í Pepsi-deildinni.
„Það er ljóst að það verður ekkert framhald á ferli mínum hjá FH. Það er ekkert í gangi sem stendur en maður stefnir á það að spila áfram í úrvalsdeildinni. Það er bara að bíða og sjá hvað gerist," segir Guðmundur.
Eftir að Ólafur Jóhannesson, fyrrum þjálfari Guðmundar hjá FH, tók við 1. deildarliði Hauka fóru í gang sögur um að hann myndi reyna að fá Guðmund yfir.
„Eins og ég segi þá er ekkert í gangi. Haukar koma alveg til greina eins og hvað annað en er ekki fyrsti kostur. Helst vil ég spila áfram í efstu deild ef það kemur eitthvað spennandi upp."
„Það væri ágætt ef mín mál myndu skýrast í janúar. Það eru fjórir mánuðir í mót en það væri fínt að ganga frá þessu í janúar," segir Guðmundur.
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson er einnig samningslaus hjá FH en hann segir að sín staða sé óbreytt. Hann sé ekki í viðræðum við neitt félag eins og er, sé bara að æfa sjálfur og skoða sín mál. Hann segist ekki viss um að spila næsta sumar, það sé í skoðun.




