Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 22. janúar 2012 11:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Bragi dómari með hljóðnema í leik ÍA og Vals
Siggi Jóns fékk rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð.
Siggi Jóns fékk rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð.
Mynd: Guðmundur Svansson
Í júlí árið 1992 áttu ÍA og Valur við í hörkuleik á Akranesi. Bragi Bergmann dómari leiksins var með hljóðnema sem tók upp allt það sem fór fram í leiknum.

Upptakan vakti mikla athygli þegar hún var sýnd eftir leikinn og nú er hægt að horfa á tíu mínútna brot úr leiknum á YouTube með upptökunni frá Braga.

Þónokkur harka var í leiknum og Bragi hafði í nógu að snúast við að spjalda leikmenn liðanna.

Nokkrir leikmenn fengu gula spjaldið og þeir Einar Páll Tómasson hjá Val og Sigurður Jónsson hjá ÍA voru báðir reknir af velli.

Í myndbandinu sjást samtöl Braga og leikmanna og óhætt er að segja að þau séu ansi skemmtileg á köflum.

Valsmenn fóru á endanum með 5-1 sigur af hólmi en Skagamenn urðu hins vegar Íslandsmeistarar um haustið.

Hér að neðan má sjá þetta magnaða myndbrot af YouTube.


Slapp
banner