Skrifstofa ríkissaksóknara hefur fengið ábendingu vegna harðra ummæla Joey Barton á Twitter tengdum réttarhöldunum yfir John Terry.
Eftir að Terry var sviptur fyrirliðabandi enska landsliðsins tók Barton, sem sjaldan liggur á skoðunum sínum, sig til og byrjaði að tjá sig um málið á Twitter.
Terry, sem neitar ásökunum um að hafa beitt Anton Ferdinand kynþáttaníði, mun mæta fyrir rétt í júlí eftir að Evrópumóti landsliða lýkur.
,,Þetta John Terry mál er orðið eitt af þeim verst stýrðu leiksýningum sem ég hef séð. Hvað í fj**danum er í gangi..." sagði Barton á Twitter.
,,Við vitum öll hvað hann sagði, það náðist í sjónvarpinu. Held ég að hann sé rasisti? Nei. Ég held að hann hafi sagt eitthvað heimskulegt í hita leiksins."
,,Þetta mál hefði átt að vera afgreitt á stundinni, eins og Suarez málið, og svo væri það bara búið. Því lengur sem þetta er í gangi, því verra er það fyrir íþróttina. Við þurfum að losna við kynþáttafordóma, það eru allir sammála um það."
,,Um leið og þetta var komið úr höndum knattspyrnusambandsins átti þetta eftir að enda illa. Þetta er orðinn farsi, það hefði átt að tækla þetta strax."
Barton tjáði sig svo um þessi ummæli og sagðist vera tilbúinn að fara í fangelsi til að verja málfrelsið. Það er þó ekki víst að það komi til þess, þó að þau séu komin á borð saksóknarans.



