Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   sun 08. júlí 2007 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Heimild: Víkurfréttir 
Guðmundur Steinars: Hlökkum til að mæta ÍA aftur
Guðmundur Steinarsson
Guðmundur Steinarsson
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Guðmundur Steinarsson, sóknarmaður Keflavík, sagði í viðtali við Víkurfréttir í Suðurnesjum að hann hlakki til þess að mæta ÍA aftur í sumar en þau mætast næst í átjándu umferð Landsbankadeildarinnar, svo framarlega sem þau mætast ekki í VISA-bikarnum.

Guðmundur segist ekki vera ánægður með það hvernig umræðan hefur þróast og segir ‘ömurleg framkoma' Skagamanna inni á vellinum skipta mestu máli.

,, Nú er boltinn hjá KSÍ sem er að reyna að fá niðurstöðu í þetta mál ásamt félögunum. Hver svo sem hún verður og hversu sáttir sem menn verða við hana. Umræðan hefur verið að snúast um að við þyrftum að biðjast afsökunar á okkar hegðun eftir leik og þannig hefur verið dregin athygli af markinu og það er mjög döpur umræða,” sagði Guðmundur við Víkurfréttir.

,,Þeir eru að einblína á það sem gerðist eftir leik, en við erum að benda á hina ömurlegu framkomu þeirra inni á vellinum. Það skýrir okkar mál best með framkomu okkar utan vallar og innan að við fáum hvorki skömm í hattinn frá dómara né eftirlitsdómara leiksins. Enginn okkar fékk gult spjald fyrir mótmælin.”

Hann segir sína menn ekki hafa brugðist harkalega við: ,, Nei, það vissu allir inni á velinum hvað hann var að hugsa og hann vissi það best sjálfur. Mér fannst viðbrögð okkar eðlileg. Við hlaupum að honum og spyrjum hvern djöfulinn hann sé að gera. Það er líka hægt að sjá af myndum að hörðustu höggin sem Bjarni fær eru frá hans eigin mönnum þegar þeir eru að draga hann í burtu. Það var enginn Keflvíkingur sem fer á honum eftir það.”

,, Það sést á myndunum að það er verið að ýta mönnum tiil, en það er enginn sleginn eða kýldur eða sparkað í einhvern. Það var ekkert svoleiðis. Það hafa gerst verri atriði en þetta á Íslandi og víðar.”

Að lokum segir Guðmundur síðan að hann hlakki til þess að mæta ÍA aftur: ,, Það má alveg vera smá kergja á milli þessara félaga og við hlökkum bara til að mæta þeim í 18. umferð, það er ef þeir þora að koma!”
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner