Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   lau 11. ágúst 2007 15:37
Hafliði Breiðfjörð
Valsstúlkur burstuðu KÍ og eru komnar í milliriðla
KÍ 0-6 Valur
Kvenaboltinn
Margrét Lára er komin með tvö mörk fyrir Val.
Margrét Lára er komin með tvö mörk fyrir Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rakel Logadóttir skoraði fyrsta mark Vals.
Rakel Logadóttir skoraði fyrsta mark Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði þriðja mark Vals.
Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði þriðja mark Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín Jónsdóttir skoraði fjórða markið.
Katrín Jónsdóttir skoraði fjórða markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði sjötta mark Vals eftir að hafa komið innná sem varamaður.
Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði sjötta mark Vals eftir að hafa komið innná sem varamaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir markvörður var í byrjunarliði Vals og hélt hreinu.
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir markvörður var í byrjunarliði Vals og hélt hreinu.
Mynd: Fótbolti.net - Birgir Viðar Halldórsson
0-1 Rakel Logadóttir (´40)
0-2 Margrét Lára Viðarsdóttir (´50, víti)
0-3 Guðný Björk Óðinsdóttir (´55)
0-4 Katrín Jónsdóttir (´60)
0-5 Margrét Lára Viðarsdóttir (´66)
0-6 Nína Ósk Kristinsdóttir (´69)

Nú rétt í þessu var að ljúka leik Vals og KÍ frá Færeyjum í Evrópukeppni félagsliða kvenna en leiknum lauk með stórsigri Vals, 6-0. Með sigrinum er Valur búið að tryggja sér efsta sætið í riðlinum þrátt fyrir að aðeins tvær umferðir af þremur séu búnar.

Í fyrstu umferðinni vann Valur lið Honka frá Finnlandi 2-1 og eru því eftir sigurinn í dag komnar með 6 stig. Den Haag frá Hollandi gerði jafntefli við KÍ í fyrstu umferðinni og tapaði svo fyrir FC Honka í dag. Valur mætir Den Haag sem er með eitt stig á þriðjudag en Valur eru komnar með 6 stig, Honka 3 og KÍ 1. Honka gæti jafnað Val að stigum í lokaumferðinni en þar sem Valur vann innbyrðis viðureign þeirra eru þær íslensku þegar búnar að tryggja sér sigur í riðlinum.

Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á Fótbolta.net og hér að neðan má lesa hana.

15:37: Dómarinn flautar til leiksloka. 0-6 sigur Vals staðreynd.

15:33: KÍ bjarka á línu eftir hælspyrnu Nínu Óskar.

15:28: Thelma á góðar fyrirgjafir að marki. Fyrst fór boltinn til Nínu sem á slakt skot sem markvörður KÍ grípur, svo fór boltinn yfir slánna og framhjá. Skömmu síðar á Nína skot sem fer í varnarmann og útaf. Hornspyrna dæmd sem ekkert varð úr.

15:26: Dóra María með skot utan af velli eftir góðan undirbúning hjá Dagný sem sendi átti fyrirgjöf sem endaði fyrir framan teiginn.

15:25: Dagný á fyrirgjöf fyrir markið en markvörður KÍ nær honum. Markvörðurinn lá meidd á vellinum eftir samstuð við Nínu Ósk sem var næstum búin að skora en hreinsað var á línu. Hún stóð aftur upp.

15:19: Margrét Lára með stungusendingu á Guðný Björk en boltinn aðeins of langur og markvörður KÍ nær honum.

15:16: Margrét Lára og Dagný áttu báðar skalla að marki eftir fyrirgjöf Guðnýjar en boltinn fór framhjá eftir skalla Dagnýar.

15:15: Dóra María kemur inná aftur.

15:13: Vanja er komin inná aftur en Dóra María enn utan valllar og Valur því manni færri. Það sést þó ekki því Valur er enn mun sterkara liðið á vellinum.

15:11: Vanja Stefanovic og Dóra María Lárusdóttir liggja báðar á vellinum og þurfa aðhlynningu. Vonandi þurfa þær ekki að fara af velli því Valur hefur þegar notað allar 3 skiptingarnar sínar.

15:10: Nína Ósk Kristinsdóttir bætir við sjötta markinu eftir frábæran undirbúning Margrétar og Dagnýar.

15:08: Valur gerir sína síðustu skiptingu. Thelma Björk Einarsdóttir kemur inná í stað Pálu Marie Einarsdóttur.

15:06: Margrét Lára Viðarsdóttir bætir við fimmta markinu. Hún sólaði fjórar og lagði boltann í markið, frábært mark.

15:03. Margrét Lára skorar en markið ekk dæmt gilt, línuvörður dæmdi rangstöðu, líklega ranglega. Áður hafði Hallbera átt gott skot sem markvörður KÍ varði og nú rétt í þessu átti Dóra María gott skot sem var vel varið.

15:02: Valur gerir tvær breytingar á liði sínu. Nína Ósk Kristinsdóttir kemur inn fyrir Katrínu Jónsdóttur og Dagný Brynjarsdóttir inn fyrir Rakel Logadóttur.

15:00: Katrín Jónsdóttir bætir við fjórða marki Vals með skalla eftir hornspyrnu Margrétar Láru. Hornspyrnan kom í kjölfar góðs spretts hjá Rakel Logadóttur.

14:47: Hallbera átti skot langt utan af velli sem sleikti slána og fór yfir markið.

14:55: Guðný Björk Óðinsdóttir bætir þriðja markii Vals við með skalla eftir fyrirgjöf frá Vanja Stefanovic. Vanja hefur tvívegis verið dæmt rangstæð undanfarnar mínútur.

14:50: Margrét Lára kemur Val í 2-0 með marki úr vítaspyrnu. Hún skorar örugglega með skoti í vinstra hornið. Spyrnan hafði verið dæmd eftir að brotið hafði verið á Guðný Björk Óðinsdóttur sem var að sleppa í gegn eftir samleik við Margréti Láru.

14:46: Síðari hálfleikur er hafinn, engin breyting hefur verið gerð á liði Vals. Dóra María Lárusdóttir þrumar boltanum hárfínt yfir markið eftir sendingu frá Rakel Logadóttur strax í byrjun síðari hálfleiks.

14:30: Búið er að flauta til hálfleiks. Skömmu áður en það var gert átti KÍ góða aukaspyrnu inn í teig en Ása markvörður gerði vel og greip boltann.

14:27: KÍ á aukaspyrnu að marki Vals sem Katrín Jónsdóttir skallaði frá. Í kjölfarið komst Valur í sókn og Katrín reyndi að skora með bringunni eftir fyrirgjöf frá Rakel Logadóttur en markvörður KÍ ver. Í næstu sókn var framherji KÍ næstum sloppin í gegn en Ásta Árnadóttir hljóp hana uppi og hreinsaði. Valur fær markspyrnu.

14:24: Rakel Logadóttir kemur Val yfir með skalla eftir fyrirgjöf Margrétar Láru á 40. mínútu.

14:22: Rakel Logadóttir sólaði þrjá varnarmenn KÍ, sendi boltann fyrir markið þar sem Vanja Stefanovic var og skaut í slá. Skömmu síðar fengu Valsstúlkur tvær hornspyrnur í röð en ekkert varð úr þeim.

14:19: Leikmenn KÍ komast sjaldan yfir miðju en þegar það gerist missa þær boltann strax aftur. Linda Rós átti rétt í þessu máttlaust skot sem markvörður KÍ varði.

14:13: Hallbera Guðný Gísladóttir tekur aukaspyrnu á miðjum velli. Sending á Vanja sem skýtur framhjá markinu. Vanja hefur átt góðan leik og rúllar upp bakverði KÍ, kemst alltaf framhjá henni. Linda Rós potar í boltann en rétt framhjá.

14:09: Margrét Lára á skot framhjá eftir sendingu frá Vanja Stefanovic. Í kjölfarið á Linda Rós fyrirgjöf sem markvörður KÍ kemst inní. Dóra María á svo skot utan af velli sem fór yfir markið.

14:06: Nú eru 20 mínútur liðnar af leiknum. Valsliðið er mun sterkara en það færeyska og leikurinn fer nánast allur fram á vallarhelmingi KÍ. Þær færeysku reyna lítið að spila boltanum, spyrna honum oftast í burtu þegar þær fá hann.

14:05: Margrét Lára átti skot rétt fyrir utan vítateig sem fór framhjá markinu. Skömmu síðar var brotið á henni innan vítateigs en ekkert dæmt.

14:01: Linda Rós Þorláksdóttir sendingu fyrir markið á kollinn á Margréti Láru sem skallar framhjá markinu.

13:58: Margrét Lára Viðarsdóttir í dauðafæri. Hún á skot yfir markið úr vítateig eftir að hafa fengið sendingu frá Vanja Stefanovic.

13:53: Valsstúlkur áttu tvær hornspyrnur í röð. Í fyrra skiptið var skalli Katrínar Jónsdóttur varinn í horn að nýju en ekkert varð úr síðari spyrnunni. Skömmu síðar fengu þær þriðju hornspyrnuna og þá skallaði Katrín rétt framhjá markinu.

13:50: Leikurinn er hafinn og á fyrstu fimm mínútunum hefur Valslliðið legið vel á KÍ. Ása Dögg hefur varið einu sinni skot KÍ.

13:34: Finnska liðið FC Honka lagði það hollenska Den Haag með einu marki gegn einu fyrr í dag. Þar með er ljóst að Val nægir sigur í leiknum gegn KÍ nú á eftir til að tryggja sér sigur í riðlinum og þá skiptir engu hvernig lokaleikur Vals gegn Den Haag frá Hollandi fer á þriðjudag. Önnur úrslit í riðlinum hafa verið þau að í fyrstu umferðinni vann Valur lið FC Honka 2-1 og KÍ og Den Haag gerðu 1-1 jafntefli.

13:32: Létt þoka er yfir vellinum sem þó kemur og fer. Völlurinn sjálfur er pínu þungur.

13:30: Byrjunarliðið tilbúið.
Elísabet Gunnarsdóttir hefur tilkynnt byrjunarlið Vals en hún stillir upp í leikkerfinu 4-3-3 eins og í fyrsta leiknum. Hún gerir þrjár breytingar á liðinu frá leiknum gegn FC Honka og hvílir þrjá sterka leikmenn fyrir lokaleikinn gegn Den Haag frá Hollandi.

Ása Dögg Aðalsteinsdóttir kemur í markið í stað Guðbjargar Gunnarsdóttur, Linda Rós Þorláksdóttir kemur í hægri bakvarðarstöðuna í stað Sif Atladóttur og Hallbera Guðný Gísladóttir kemur í vinstgri bakvarðarstöðuna en Nína Ósk Kristinsdóttir dettur úr liðinu í stað hennar.
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir
Linda Rós - Ásta Árnadóttir - Pála Marie Einarsdóttir - Hallbera Guðný
Dóra María Lárusdóttir
Katrín Jónsdóttir - Guðný Björk Óðinsdóttir
Rakel Logadóttir - Margrét Lára Viðarsdóttir - Vanja Stefanovic

Athugasemdir
banner
banner