Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fim 27. september 2007 17:08
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Benitez ekki búinn að ákveða hvort Torres byrji um helgina
Mynd: Getty Images
Rafa Benitez stjóri Liverpool hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Fernando Torres verði í byrjunarliðinu gegn Wigan um helgina.

Torres gerði þrennu gegn Reading í deildabikarnum á þriðjudaginn en hann hafði byrjað á varmannabekknum í tveimur síðustu deildarleikjum, þar sem Liverpool tókst ekki að skora. Benitez hefur hins vegar ekki ákveðið hvort Torres byrji gegn Wigan.

,,Nei. Þetta er ekki erfitt, við fengum Torres þar sem að hann hefur gæði og við fengum (Dirk) Kuyt, (Andrei) Voronin og (Peter) Crouch af sömu ástæðu," sagði Benitez við Sky Sports.

,,Ég veit að allir tala um hann þar sem hann skoraði þrjú mörk en það var sama staða áður með framherjana og stjórinn verður að taka ákvörðun."
Athugasemdir
banner
banner
banner