Sendu okkur mynd af þér og frægum fótboltakappa og láttu fylgja með smá texta um hvenær og hvar þú hittir hann og jafnvel mjög stutta sögu af því þegar þú hittir hann. Á næstu vikum munum við svo birta myndina hér á síðunni. Allar myndir sem sendar eru verða birtar.
Sendið myndir á [email protected] Athugið að Fótbolti.net áskilur sér rétt til að nota allar myndirnar sem sendar eru til birtinga á www.fotbolti.net. Öllum er frjálst að senda inn myndir af sér með frægum fótboltamanni er er það einnig algjörlega óháð því hversu gömul myndin er.
Hér að neðan má sjá nýjasta skammtinn af myndum af Íslendingum með frægum fótboltaköppum. Hér eftir munum við svo birta aðsendar myndir á hverjum föstudegi.
|
Myndir birtar föstudaginn 2. nóvember 2007 |
||
![]() |
![]() |
|
| Jóhann Bjarnason og Bergur ásamt John Terry leikmanni Chelsea. | Bragi Hinrik Magnússon og Leroy Lita, leikmaður Reading, hittust eftir leik Reading og Stoke á síðasta tímabili og áttu gott spjall um boltann, sérstaklega þó þá Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson. | |
![]() |
![]() |
|
| Þessar 2 myndir eru teknar í byrjun mars 2006 en þá fór Sigurður Gíslason í draumaferðina á Anfield. Hann var orðinn mikið veikur á þessum tíma og lést 6 vikum síðar þann 15. apríl. Hann fór með föður sínum á á leik Liverpool og Charlton, og eftir leik fengu þeir feðgar ásamt Sigursteini Fyrrverandi formanni Liverpool klúbbsins á Íslandi að fara inn á players lounge og hitta leikmenn Liverpool. Þar inni er myndavélabann sem þeir virtu þó þá hafi klæjað mikið að fá að taka nokkrar myndir í þessu návígi við stjörnurnar. En Hermann Hreiðarsson kom þarna inn og færði þeim treyju sína og Cisse. Þegar þeir voru að yfirgefa staðinn fengu þeir Hermann til að stilla sér upp með Sigga. Að sjálfsögðu var skroppið inn á Park og þar tók Pete Samparas á móti þeim og er hann einmitt með Sigga á annarri myndinni. ,,Þessi maður er algjör perla og gerði mikið fyrir okkur þarna í ferðinni," sagði Gísli. |
||
![]() |
![]() |
|
| Frá vinstri: Magrét Jústa, Vera Björt, Edgar Davids, Þórunn Elísabet, Hildur Sif og Helga. Þær hittu kappan í Brussel en Þórunn hefur um árabil verið mikill áðdáandi Tottenham þar sem Davids lék á þeim tíma. | Feðgarnir Tryggvi og Jón Þór Tryggvason með Martin Keown á Emirates, fyrir leik með Arsenal á móti Sheffield Wednesday. | |
![]() |
![]() |
|
| Brynjar Ingi Bjarnason ásamt Sveppa og Eiði Smára fyrir lokahóf Essómótsins 2005 þar sem Eiður var að afhenda verðlaun. | Óli Hall hitti Luca Toni á veitingastað á Ítalíu í fyrra og þaðan er þessi mynd tekin. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 6. október 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Fannar Máni Fjalarsson og Hróbjartur Pálsson á Skagamóti 7.flokks 2006 ásamt landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára sem leikur með Barcelona. | Fannar Máni Fjalarsson ásamt Xabi Alonso leikmanni Liverpool en myndin er tekin er spænska landsliðið kom hingað til lands í sumar. | |
![]() |
![]() |
|
| Fannar Máni Fjalarsson á þrjár myndir í dag. En hér er hann ásamt Iker Casillas markverði Real Madrid og spænska landsliðsins í Laugardalnum í sumar. |
Daníel Tryggvi Daníelsson ásamt Fernando Torres leikmanni Spænska landsliðsins og Atlético de Madrid, þegar að Spánverjar komu hingað til lands og gerðu jafntefli við okkur á Laugardalsvellinum. Ástæðan fyrir því að hann valdi bara að fá mynd með honum en ekki einhverjum öðrum eins og Raul, Reyes, Fabregas eða einhverju öðrum er sú að hann var að vonast til að hann myndi ganga til liðs við Manchester United og þar sem að hann er dyggur stuðningsmaður þeirra þá fannst honum gaman að eiga kannski mynd af sér með þessum hugsanlega verðandi leikmanni United. |
|
![]() |
![]() |
|
| Á Myndinni eru Örn Rúnar Magnússon til vinstri, Hermann Hreiðarsson og Andri Magnússon , en þessi mynd er tekin á The Valley. Myndin var tekin 17. april eftir leik Charlton og Portsmouth. Eftir leikinn skelltu bræðurnir sér ásamt foreldrum og systur sér í mat hjá Hermanni um kvöldið. | Björn Ingi Ásgeirsson, Guðrún Ósk og E. Charlotta hittu besta fótboltamann heims, Ronaldinho, á flugvellinum í Barcelona árið 2004 en þar er þessi mynd tekin. |
|
![]() |
![]() |
|
| Sigurjón Gísli Rúnarsson og frændi hans Ágúst Halldór Viðarsson fóru á HM í sumar og sáu Holland-Serbíu í Leipzig. Daginn fyrir leik (10.júní) voru þeir í fótbolta út í garði við hótelið sitt og þá kom sjálfur Albert Ferrer (Spánn, Barcelona, Chelsea) á jogginu og spyr hvort hann megi vera með. Hann spilaði 1on1 við þann stutta og allir skemmtu sér vel. Myndirnar þrjár eru teknar við það tækifæri. | ||
|
Myndir birtar föstudaginn 29. september 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Sigurgeir Bárðarson ásamt Steven Gerrard fyrirliða Liverpool eftir 3-0 sigur á Tottenham um helgina. | Guðmundur Örn Bárðarson ásamt John Arne Riise eftir 3-0 sigur Liverpool á Tottenham um helgina. | |
![]() |
![]() |
|
| Kristján Gestsson ásamt John Terry fyrirliða Chelsea eftir leik Chelsea og Everton 17. apríl síðastliðinn. Terry var á röltinu fyrir utan Chelsea hótelið þegar KRistján hitti hann, spjallaði við hann og fékk að taka myndir. |
Sölvi Þrastarson á góðri stundu með Ruud Gullit þegar þeir hittust. Sölvi hitti hann í skoðunarferð sinni á San Siro sumarið 2001. Varð strax vel til vina með köppunum og vonast þeir til að hittast aftur í bráð. Gullit var þögull enda bara eftirlíking af þessum magnaða knattspyrnumanni. | |
![]() |
![]() |
|
| Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Þór Willemous Petersen hittu Jose Reina á EstEstEst sem er frægur veitingastaður í Liverpool og gaf Reina sér tíma í að spjalla við föður Brynjars, Guðmund Árna Stefánsson sendiherra Íslands í Svíþjóð en hann tók myndina |
Birgir Örn Birgisson hitti uppáhaldsleikmanninn sinn Tim Cahill hjá Everton er hann var staddur í Liverpool borg í mars. Hann var í viðskiptaferð þar í borg og á leið sinni út af hótelinu áleiðis á fund mætti hann Cahill. Birgir sem er Everton maður fram í blá/hvítan dauðann áttaði sig ekki strax á hver þar færi og missti af honum inní lyftuna. ,,En ég vissi að hann kæmi aftur út...svo ég hringdi og frestaði fundinum sem ég var að fara á og settist í lobbyið og beið. Svo liðlega klukkustund seinna kom hetjan og brást mjög vel við þegar ég bað um mynd. Algjört ljúfmenni," sagði Birgir. | |
![]() |
![]() |
|
| Gabríel Ingi, Eiður smári og Eyrún Rakel eru hérna með Eið Smára Guðjohnsen fyrirliða íslenska landsliðsins eftir leik Chelsea gegn Middlesboro á síðustu leiktíð. Þar sem Gabríel er mikill Chelsea aðdáandi og var ekki verst þegar hann fékk að sjá allar stór stjörnurnar í Chelsea. Bæði er þau að æfa fótbolta og er Eyrún að æfa með Fylki úr Árbænum og er litli bróðir hennar að æfa með Þrótti úr Laugardalnum. |
Hinrik Jóhannesson hitti Hristo Stoichov fyrrum stjörnu í búlgarska landsliðinu er hann var í sumarfríi í sumar og fékk að taka mynd af sér með honum. Myndin er tekin 22. júní síðastliðinn.
|
|
![]() |
![]() |
|
| Hjörleifur Þórðarson hitti Nesta á æfingu ítala á æfingu þeirra á Laugardals velli fyrir leik þeirra gegn íslandi fyrir tveimur árum. | Kristján Gestsson hitti Shaun Writht Phillips á Chelsea hótelinu eftir leik Chelsea og Everton 17. apríl síðastliðinn. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 22. september 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Viktor Karl Ævarsson ásamt með Bobby Robson, þá stjóra Newcastle. Myndin var tekin 15. september 2001 fyrir utan búningsklefa leikmanna á St. James’ Park, eftir sigurleik Newcastle á Manchester, en lokastaða var 4-3 fyrir heimamönnum. Maðurinn á bakvið er öryggisvörður Newcastle, sem var eitthvað tortrygginn af því faðir Viktors hljóp til Bobby’s og bað um mynd. Faðir hans er mikill maður og þegar hann hljóp til hans komu nokkrir verðir út, t.d. þessi á myndinni. |
Samuel Ochineg Brooklyn Sewe og Viðar Kjartansson ásamt Kolo Toure leikmanni Arsenal og Fílabeinsstrandarinnar. Myndin er tekin á síðasta ári eftir leik Arsenal og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en þeir félagar náðu einnig mynd af sér ásamt Patrick Vieira sem hefur birst áður. |
|
![]() |
![]() |
|
| Kristófer Jónsson, 10 ára, fór með pabba sínum á Old Trafford í nóvember síðastliðnum og sá sína menn í Man Utd vinna Chelsea 1-0. Á flugvellinum í Manchester hitti hann Ji-Sung Park leikmann United og fékk að stilla sér upp með honum fyrir myndatöku. |
Daníel Freyr Jónsson, ásamt Teddy Sheringham en hann hitti Teddy fyrir leik Wigan og West Ham á síðustu leiktíð. Teddy og menn eins og Harewood, Reo Coker og fleiri voru á röltinu úti á velli næstum klukkutíma fyrir leik og gáfu sér fínan tíma í að gefa áritanir stilla sér upp með honum og örfáum öðrum strákum. Daníel heldur með Man Utd og vildi því helst fá mynd af sér með Teddy heldur en öðrum leikmönnum enda spilaði hann um tíma þar. | |
![]() |
![]() |
|
| Þórður Gunnarsson ásamt Arnari Gunnlaugssyni fyrrum atvinnumanni erlendis sem í dag er spilandi þjálfari ÍA. Myndin er tekin á góðri stundu hjá þeim félögum á Hverfisbarnum. | Aron Ívarsson ásamt tékkneska markverðinum Petr Cech sem leikur með Chelsea eftir 2-1 tapleik enska liðsins gegn Barcelon í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð. | |
![]() |
![]() |
|
| Jón Óli, Brynjar Örn, Sigursteinn (formaður Liverpool klúbbsins) Steven Gerrard og Sigurður Reynisson að afhenda Gerrard verlaun fyrir að hafa verið valinn leikmaður ársins hjá liverpool klúbbnum á Íslandi fyrir tímabilið 2003-2004. Myndin er tekin eftir leik Liverpool-Everton 18.03.2005 þar sem Liverpool vann leikinn 2-1 á Anfield. | Gunnar Þorsteinsson ásamt goðinu sínu Matt LeTissier. Myndin er tekin eftir leik Southampton og Liverpool 22. jan 2005 sem endaði 2-0 fyrir Southampton. |
|
|
Myndir birtar föstudaginn 28. apríl 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Trausti Friðbertsson, Torfi Bryngeirsson og Ingimar Guðbjarsson hittu Ítalann Gennaro Gattuso sem leikur með AC Milan þegar ítalska landsliðið kom hingað til lands og mætti Íslandi. Gattuso var ekket nema svalur og spjölluðu þeir við smá við hann. |
Mynd frá árinu 1992 þegar brasilíska goðsögnin Pele kom hingað til lands. Með honum á myndinni eru til dæmis Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi, Gunnar Sigurðsson bakari og Ásgeir Sigurvinsson fyrrum landsliðsþjálfari Íslands. |
|
![]() |
![]() |
|
| Í mars árið 2002 fór Jóhann Reynir Gunnlaugsson ásamt bróður sínum Sveini, afa sínum Sveini og pabba sínum í pílagrímsferð til Old Trafford að sjá Man. Utd. spila við Aston Villa. Í verslunarleiðangri í Megastore daginn fyrir leikinn hittu þeir Laurence Blanc, franska varnarjaxlinn sem spilaði þá með MU. Hann brást vel við ósk um myndatöku. MU vann leikinn 1-0 og skoraði Ruud van Nistelrooy markið í byrjun seinni hálfleiks. | Arnar Guðlaugsson frá Grundarfirði hitti Steve McManaman fyrrum leikmann Liverpool, Real Madrid og Manchester City á pöbbnum Blue í Liverpool sem er í eigu Robbie Fowler. Myndin er tekin eftir leik Liverpool og Benfica í Meistaradeildinni 8. mars síðastliðinn. |
|
![]() |
![]() |
|
| Ásta og Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði. |
Alexander Aron Gylfason 3 flokki Viking með Arjen Robben leikmanni Chelsea a ZUMA sem er japanskt steikhus i London, fyrir aftan Harrods. Myndin er tekin eftir leikinn West Ham - Chelsea i byrjun janúar. |
|
![]() |
![]() |
|
| Hörður Jónsson ásamt John Terry fyrir Leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildinni árið 2005. |
Hermann Árnason og Paul Robinson markvörður Tottenham en þessi mynd er tekin 11.mars 2006 er Tottenham var að mæta Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Hermann hitti Robinson á hótelinu sem hann gisti á. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 21. apríl 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Gunnar Sigurðsson bakari á Akranesi, Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United og Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi. Myndin er tekin í nóvember síðastliðnum. | Bogi Molby Pétusson fasteignasali ásamt goðinu og frænda sínum Jan Molby í mars árið 2005. Myndin er tekin á Anfield í Liverpool eftir leik Liverpool og Everton. | |
![]() |
![]() |
|
| Helga Ingimarsdóttir ásamt Ji sung Park leikmanni Manchester United. Helga fór ásamt sonum sínum á leik Man Utd og Chelsa á Old Trafford og er myndin tekin á flugvellinum í Manchester daginn eftir leikinn þar sem þau ræddu mikið við kappann sem var á leið í landsleik með Suður Kóreu. | Viðar Jónasson og Kári Jónasson ásamt El Hadji Diouf framherja Bolton Wanderers og landsliðs Senegal. Myndin er tekin eftir sigur Liverpool á Manchester United í FA Cup í febrúar 2006. |
|
![]() |
![]() |
|
| Jonni Eyjamaður brá sér á leik í Manchester með ÍT ferðum 2004. Þar var Hemmi Hreiðars Eyjapeyji að keppa og gaf sér góðan tíma eftir leik með honum og félaga hans. |
Samuel Ochineg Brooklyn Sewe ásamt Patrick Vieira þáverandi leikmanni Arsenal en núverandi leikmanni Juventus. Myndin er tekin í fyrra eftir leik Arsenal og Man City í deildinni en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. | |
![]() |
![]() |
|
| Þessi mynd er tekin fyrir utan Zuma sem er vinsælt japanskt steikhús fyrir aftan Harrods í London. Bræðurnir Alexander Aron Gylfason sem leikur í 3. flokki Víkings og Gylfi Aron gylfason sem spilar háskólabolta í Bandaríkjunum hittu þar Hermann Hreiðarsson, Heiðar Helguson, Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson. | Arnar páll Ágústsson ásamt Steve McManaman fyrrum leikmanni Liverpool, Real Madrid og Manchester City. Myndin er tekin á Blue Bar sem er í eigu Robbie Fowler eftir tap Liverpool gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu 8. mars síðastliðinn. |
|
|
Myndir birtar föstudaginn 14. apríl 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Hannes Marinó Ellertsson starfsmaður Landsbankans og Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihús Hellissands hf. ásamt Cristiano Ronaldo # 7 leikmanni Manchester United. Tökustaður Radison Edwardian Hotel í Manchester þann 6. nóv. ´05 morguninn fyrir leik United og Chelsea á Old Trafford sem endaði 1-0 fyrir heimamenn. Þess má geta að fleiri leikmenn United óskuðu eftir að fá mynd af íslendingunum en höfðu ekki erindi sem erfiði. |
Jón Brynjar Jónsson ásamt John Terry leikmanni Chelsea. Myndin er tekin er þeir hittust eftir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu 8. mars 2005. Terry sagði honum þá að honum þætti hann líkur Eiði Smára. Hann spjallaði einnig við William Gallas og Joe Cole en náði ekki mynd af þeim með sér. |
|
![]() |
![]() |
|
|
Þessar myndir eru af goðsögninni Pele þegar hann kom til Íslands í boði KSÍ og VISA Ísland árið 1991.Myndirnar eru teknar í Fram heimilinu 2. nóvember 1991 en á vinstri myndinni er Pele og Sveinn Lárus Hjartarson sem átti eins árs afmæli þennan dag. Á hægri myndinni eru Pele, Sveinn Lárus og Sveinn Sveinsson dómari og stór Framari sem er afi þessi litla. |
||
![]() |
![]() |
|
| Á þessari mynd er Daði ásamt Joey Barton leikmanni Manchester City. Myndin er tekin eftir leik Charlton-Man City 4.desember árið 2005 á The Valley. Man City vann 5-2 og ég Daði hitti Barton inni í player lounge inu hjá Charlton er hann var að bíða þangað til Hemmi Hreiðars myndi koma úr lyfjaprófi. | Freyr Gunnar Þorleifsson ásamt John Arne Riise sem þarna situr í bílnum sínum fyrir utan æfingasvæði Liverpool á Melwood. |
|
![]() |
![]() |
|
| Hermann Árnason ásamt Robbie Keane framherja Tottenham. Myndin er tekin 11. mars 2006 er Tottenham mætti Chelsea í deildinni. Hermann hitti Keane á hótelinu sem hann og Tottenham gistu á. | Bræðurnir Ingimar og Kristóferi ásamt Ji sung Park leikmanni Manchester United. Bræðurnir fóru ásamt móður sinni á leik Man Utd og Chelsa á Old Trafford og er myndin tekin á flugvellinum í Manchester daginn eftir leikinn þar sem þau ræddu mikið við kappann. Mynd af móður þeirra og Park birtist fljótlega. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 7. apríl 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Elvar Geir Magnússon blaðamaður á Fréttablaðinu og fyrrverandi ritstjóri Fótbolta.net ásamt Frank Lampard miðvallarleikmanni Chelsea. Myndin er tekin á Chelsea hótelinu í Lundúnum fyrir stórleikinn gegn Barcelona í Meistaradeildinni fyrr á árinu. | Félagarnir Óskar Örn Ólafsson og Guðni Sigurðsson ásamt framherjanum enska Francis Jeffers er myndin er tekin í ferð þeirra félaga til The Valley er þeir fóru á leik með Charlton Athletic. |
|
![]() |
![]() |
|
| Birgir Ólafsson fyrrverandi leikmaður Leiknis og núverandi leikmaður AFC Harpenden og Patrick Viera þáverandi leikmaður Arsenal en núverandi leikmaður Juventus. Myndin er tekin á snekkjusýningu í London 2004 þar sem báðir aðilar nældu sér í myndarlega snekkju. |
Erik Christianson Chaillot ásamt Petr Cech markverði Chelsea. Myndin var tekin 21.febrúar kvöldið fyrir stórleik Chelsea og Barcelona í meistaradeildinni. Eric og félagar hans voru nýkomnir á hótelið þegar þeir rákust á Cech í lobbýinu þar sem hann beið eftir lyftunni. Þeir fengu að taka mynd af honum og spjölluðu við hann á leiðinni upp en Cech hélt fyrst að þeir væru sænskir. | |
![]() |
![]() |
|
| Árni Esra Einarsson í Margt Smátt og John Aldridge sem tók við af Ian Rush í framlínunni hjá Liverpool árið 1987 þegar Ian Rush gekk til liðs við Juventus. Myndin er tekin 3. desember síðastliðinn á Anfield þegar Liverpool mætti Wigan en Árni og félagi hans hittu Aldridge í Carlsberg Lounge á Anfield. |
Hjörvar Moritz Sigurjónsson ásamt Shaun Bartlett en myndin er tekin á The Valley heimavelli Charlton um páskana 2004 þegar Hjörvar fór utan til að sjá leik Charlton og Portsmouth. |
|
![]() |
![]() |
|
| Emil Daði úr Grindavík ásamt Michael Owen en hann hitti framherjann knáa á Anfield í Liverpool á þeim tíma sem Owen var enn með liðinu en í dag leikur hann með Newcastle. |
Það eru ekki allir svo heppnir að hitta fræga fótboltamenn í eigin persónu en Egill Fannar Halldórsson fór með föður sínum til London að sjá leik sinna manna, Tottenham, gegn Blackburn á White Hart Lane í maí 2005. Ásamt Agli á myndinni er Pele, eða í það minnsta eftirmynd af honum. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 30. mars 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Maron Þór Guerreiro fór með föður sínum á leik Chelsea og Barcelona í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar. Myndin er tekin á Chelsea hótelinu þar sem þeir gistu en hér er Maron ásamt Ricardo Carvalho leikmanni Chelsea. |
Jóhann Gunnar Stefánsson framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs & Garðabæjar ásamt Allan Kennedy sem m.a. tók vítaspyrnuna frægu á móti Roma 1984 sem færðu Liverpool Evrópumeistaratitilinn. Það fyrsta sem Allan Kennedy sagði þegar hann frétti að hann væri frá Íslandi var ,,Is Hollywood still open?, What a great place that was.” Og hafði gaman af að segja honum og vini hans ýmislegt frá veru sinni hér. Fyrir þá sem eru ungir og muna ekki þá var Hollywood vinsæll skemmtistaður hér á landi á níunda áratug síðustu aldar. |
|
![]() |
![]() |
|
| Robbie Fowler og Silvía Nótt? Nei við vitum ekki alveg deili á þessari dömu sem er vinkona Robbie Fowler sem er hér á myndinni ásamt þremur íslenskum drengum. Myndin er tekin í Liverpool 14. janúar í ár en þá var það ekki einu sinni hugmynd að Fowler sneri aftur til Liverpool sem svo varð tveimur vikum síðar. Frá vinstri til hægri: Vinkona Robbie, Robbie Fowler, Kristján Ingi Gunnarsson, Friðjón Fannar Hermannsson, Árni Jón (fyrir aftan) |
Félagarnir Albert Þór Guðmundsson, Brynjar Örn Jensen og Sveinbjörn Ingi Erlendsson ásamt Anton Ferdinand leikmanni West Ham. Myndin er tekin í ferð þeirra er þeir heimsóttu Rúrik Gíslason félaga sinn og leikmann Charlton og fóru með honum á leik Charlton og Manchester United en Ferdinand hittu þeir í Charlton Players Lounge . |
|
![]() |
![]() |
|
| Gunnar Freyr Þorleifsson frá Siglufirði og Steven Gerrard fyrirliði Liverpool. Gunnar hafði farið með föður sínum til Liverpool í nóvember síðastliðnum þar sem þeir hittu goðsögnina. Gerrard var þarna að gefa út ævisögu sína á DVD disk sem nefnist My Story. Feðgarnir fóru í biðröð um 05:00 um nóttina til að ná að hitta Gerrard. | Aron Ívarsson og Arjen Robben. Myndin er tekin í Chelsea hótelinu þar sem Aron gisti þegar Chelsea og Barcelona voru að fara að spila. Myndin er tekin snemma um morguninn og eins og sést er Robben nývaknaður og ekkert sérlega hress. Hann leyfði Aron hinsvegar að fá mynd af sér en öryggisvörður á hótelinu tók myndina af þeim félögunum. | |
![]() |
![]() |
|
| Hjörvar Moritz Sigurjónsson ásamt Eyjamanninum snjalla Hermanni Hreiðarssyni sem leikur með Charlton Athletic í ensku úrvalsdeildinni. Myndin er tekin um Páskana 2004 þegar Hjörvar fór utan til að sjá leik Charlton og Portsmouth. Hermann og félagar hans tóku vel á móti Hjörvari fyrir utan völlinn og er þessi mynd tekin við það tilefni. |
Viktor Karl Ævarsson fór með föður sínum á St. James´s Park í Newcastle eftir 1-0 sigurinn gegn Arsenal í vetur. Myndin er tekin við það tilefni en hann og faðir hans voru kynntir fyrir Peter Beardsley sem átti mörg frábær ár í röndótta búningnum. Beardsley bað sjálfur um að myndin væri tekin að sögn Viktors. Síðar var Viktori svo gefin Newcastle treyja með áritun Michael Owen sem hann geymir uppi á vegg á heimili sínu. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 17. mars 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Marijan Cekic leikmaður kf Fjarðabyggð ásamt Dudek leikmanni Liverpool. Myndin er tekin á Anfield fyrir leik Liverpool-Betis í Meisaradeild Evrópu 23.nóvember í fyrra. | Maron Þór Guerreiro og Paolo Ferreira leikmaður Chelsea. Myndin er tekin í London á Chelsea hótelinu fyrir stórleik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu fyrr á árinu. | |
![]() |
![]() |
|
| Björn Elíasson,Emelía Hilmarsdóttir og Hermann Hreiðarsson leikmaður Charlton Athletic en myndin er tekin í pílagrímsferð þeirra og og vina þeirra á The Valley í Lundúnum. | Óskar Örn Ólafsson og Matt Holland leikmaður Charlton Athletic en myndin er tekin í pílagrímsferð Óskars og vina hans á The Valley í Lundúnum. | |
![]() |
![]() |
|
| Systkynin Hilmar og Ólöf Ragnarsbörn ásamt Luis Garcia leikmanni Liverpool. Myndin er tekin eftir leik Liverpool gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni en eftir leikin fóru þau ásamt föður sínum, Ragnari Hilmarssyni á Bítlasafnið og hittu Garcia þar. Hilmar er reyndar United fan en við feðgðinin harðir Liverpoolaðdáendur. Garcia fannst nú ekki mikið mál að ræða aðeins við þau og leyfa þeim að taka myndir. Í dag telst hann að sjálfsögðu til vina þeirra. | Arnór Ingvi úr Njarðvík ásamt Jose Antonio Reyes leikmanni Arsenal á Oxford Street verslurnargötunni í Lundúnum. Myndin er tekin eftir leik Arsenal og Everton í september 2005 en Arnór var ásamt föður sínum á göngu eftir Oxford Street er þeir hittur Reyes og báðu um að fá mynd af sér með honum sem var lítið mál. |
|
![]() |
![]() |
|
| Snorri Valsson ritstjóri Chelsea.is ásamt Ron "Chopper" Harris, leikjahæsta leikmanni í sögu Chelsea, með 794 leiki og fyrirliða Bikar og Evrópubikarmeistara 1970 og 1971, eftir Meistaradeildarleikin við Liverpool á Stamford Bridge í byrjun desember í fyrra. |
Gunnar Gunnarsson ásamt þjóðargerseminni Eið Smára Guðjohnsen á Kópavogsvelli 6. október 2004 að lokinni landsliðsæfingu fyrir leik Möltu og Íslands. Leikurinn var liður þjóðanna í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer einmitt fram í sumar í Þýskalandi. Leikurinn endaði með 0-0 jafntefli í frekar bragðdaufum leik úti á Möltu. Það var enginn annar en Hermann Hreiðarsson sem tók myndina, þannig að það má segja að öllu hafi verið tjaldað til. Þetta er svona dýrari týpan. | |
|
Myndir birtar föstudaginn 10. mars 2006 |
||
![]() |
![]() |
|
| Hin tíu ára gamla Gunnhildur Ásmundsdóttir sem leikur í 5. flokki Þrótti og er í 5. bekk hitti sjálfan Eið Smára og fékk að stilla sér upp í myndatöku með landsliðsfyrirliðanum. |
Maron Þór Guerreiro fór með föður sínum á leik Chelsea og Barcelona í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í febrúar. Myndin er tekin á Chelsea hótelinu þar sem þeir gistu en hér er Maron ásamt Shaun Wright Phillips leikmanni Chelsea. | |
![]() |
![]() |
|
| Jón Viðar Stefánsson yfirmaður pallaefnisdeildar Húsasmiðjunnar er hér ásamt goðsögn sinni, Neville Southall fyrrum markverði Everton en myndin er tekin árið 1994 á ferð hans á Goodison Park. |
Jóhann Gunnar Stefánsson og félagar fóru á leik Liverpool - Wigan á Anfield 3. des og voru í glæsilegri Carlsberg Lounge og nutu samverurnar með gömlum hetjum Liverpool fyrir leik, í hléi og svo eftir leik. Hér er Jóhann Gunnar með Peter Crouch eftir að hann (Crouch) var valinn maður leiksins. Var þetta í byrjun desember 2005 þegar Crouch tók upp á því að skora í fyrsta skipti fyrir Liverpool. Hann skoraði 2 mörk í 3-1 sigri Liverpool á Wigan þennan dag. | |
![]() |
![]() |
|
| Grindvíkingurinn Emil Daði fór á Anfield og horfði þar á sína menn í Liverpool spila. Eftir leikinn hitti hann fyrir tilviljun Marcus Bent sem í dag leikur í framlínu Charlton. |
Félagarnir Bjartmar Jón Ingjaldsson, Páll Árnason, Sveinn Elías Jónsson og Hörður Helgason með Edwin van der Sar markverði Manchester United. Þessi mynd var tekin í apríl í fyrra og þá var hann ennþá að spila með Fulham. Þeir rákust á kappann í Adidas Concept verslun á Oxford Street er þeir fóru til Englands til þess að sjá leik Chelsea og Crystal Palace á Stamford Bridge. | |
![]() |
![]() |
|
| Damien Duff og Stefán Smári Kristinsson nemi í HR. Þessi mynd er tekin á Íslandi, nánar til tekið á Vegamótum þann 11. nóv síðastliðinn. Stuttu eftir að myndin var tekin af þeim félögunum kom annar aðili sem vildi láta taka mynd af sér með Duff en svo óheppilega vildi til að sá ældi yfir kantmanninn írska. | Hjörvar Moritz Sigurjónsson ásamt Paolo Di Canio um páskana árið 2004 er Ítalinn snjalli lék með Charlton á Englandi. Hjörvar fór utan til að sjá leik Charlton og Portsmouth og var ánægður með móttökurnar hjá leikmönnum Charlton. |
|
|
Myndir birtar föstudaginn 3. mars 2006 |
||
| Hilmar Þór Guðmundsson sérfræðingur á Markaðsdeild Landsbankans ásamt Michel Platini fyrrum stórstjörnu í liði Juventus og franska landsliðinu. Myndin er tekin á kynningarfundi KSÍ á Nordica Hótel í Reykjavík 27. febrúar 2006. | Högni Jökull Gunnarsson framkvæmdastjóri Hróa Hattar ásamt Paolo Ferreira leikmanni Chelsea. Myndin er tekin á Chelsea hótelinu í Lundúnum nokkrum klukkustundum fyrir stórleik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu 22. febrúar 2006 þar sem Ferreira átti stórleik með Chelsea. | |





























































































