Heimild: Sky
Mohamed Sissoko leikmaður Liverpool er ekki ánægður með Rafa Benitez stjóra liðsins og gæti verið á förum frá félaginu í janúar.
Sissoko var ekki í leikmannahópi Liverpool í gær þegar liðið vann Marseille í Meistaradeild Evrópu og komst í 16 liða úrslit.
,,Ég er mjög sár, þessi leikur var spilaður í Frakklandi og öll mín fjölskylda er þar og vildi sjá mig á vellinum," sagði Sissoko.
,,Ég virði valið en við munum ræða málin í janúar. Það er komin langur tími síðan ég spurði sjálfan mig hvort ég ætti að fara. Ég er ekki hrifin af því að spila einn af hverjum fimm leikjum," sagði Sissoko að lokum.
Athugasemdir