Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 13. desember 2007 15:47
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Alonso með Liverpool gegn United um helgina
Xabi Alonso er byrjaður að æfa að nýju að nýju með Liverpool og ætti að verða orðinn klár fyrir stórleik liðsins gegn Manchester United um helgina.

Alonso hefur verið frá vegna meiðsla en hann hefur meiðst tvisvar á þessu tímabili.

,,Alonso var að æfa í dag og hann ætti að verða orðinn klár um helgina," sagði Rafa Benitez stjóri Liverpool.

,,Það gæti verið vandamál að hann hefur ekki æft með hópnum en líkamlega þá er hann tilbúinn."

Þá er Steve Finnan tæpur fyrir leikinn og Daniel Agger er ennþá meiddur.
Slapp
banner
banner