Heimild: BBC
Lögreglan á Bretlandi er að rannsaka ákæru 26 ára gamallar konu sem segir að sér hafi verið nauðgað á hóteli þar sem leikmenn Manchester United og aðrir gestir héldu veislu. Nauðgunin á að hafa átt sér stað á Great John Street hótelinu í Manchester í nótt.
Starfsfólk á hótelinu staðfesti við BBC í dag að hótelið hafi verið allt bókað undir einkasamkvæmi en lögreglan neitar að staðfesta eða neita hvort einhver leikmanna liðsins hafi átt þátt í atvikinu en rannsókn er í gangi.
,,Við erum að hjálpa lögreglunni með rannsóknn," sagði talsmaður hótelsins.
Talsmaður lögreglunnar á Manchester svæðinu sagði: ,,Lögreglan er núna að rannaska frétt af nauðgun á hóteli í miðborg Manchester. Lögreglumenn voru kallaðir til á Great John Street hótelið eftir tilkynningu um að 26 ára gamalli konu hafi verði nauðgað. Rannsókn er í gangi."
Talskona Manchester United neitaði að tjá sig um atvikið en lögreglan mun hafa komið á hóteið skömmu eftir 04:00 í nótt.
Athugasemdir