Heiðar Geir Júlíusson (til hægri) skoraði eina markið í kvöld og hér sækir hann að Halli Hallssyni í leiknum.
Fram 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Heiðar Geir Júlíusson (29)
1-0 Heiðar Geir Júlíusson (29)
Framarar lögðu Þrótt 1-0 í Reykjavíkurmóti karla í kvöld en leikið var í Egilshöll.
Þróttarar fengu gullið tækifæri til að komast yfir eftir nítján mínútna leik en þá fengu þeir vítaspyrnu eftir að fyrirgjöf fór í hendina á Jóni Guðna Fjólusyni leikmanni Fram.
Hjörtur Hjartarson steig á punktinn en Hannes Þór Halldórsson markvörður Framara gerði sér lítið fyrir og varði.
Tíu mínútum síðar kom eina mark leiksins. Reynir Leósson átti þá bakfallsspyrnu í stöngina eftir darraðadans í teignum og í kjölfarið barst boltinn út í markteig þar sem Heiðar Geir Júlíusson var fyrstur að átta sig og skoraði.
Þetta reyndist eina mark leiksins og Framarar unnu því 1-0 en liðið er með sex stig eftir tvo leiki í Reykjavíkurmótinu.
Hér að neðan eru fleiri myndir úr leiknum í kvöld en hægt er að sjá þær stærri með því að smella á þær.
Athugasemdir