lau 07.jún 2008 21:33 Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Sindri sigraði Völsung í B riðli 1.deildar kvenna
Guðlaug Sigríður Magnúsdóttir skoraði mark Völsungs í dag
Mynd: Völsungur
- TM styrkir umfjöllun Fótbolta.net um kvennaknattspyrnu
Sindri tók á móti Völsung í B riðli 1.deildar kvenna í dag á Sindravelli á Hornafirði. Fyrir leikinn var Sindri án stiga eftir einn leik sem tapaðist 2-3 á móti Hetti. Völsungur var hinsvegar með 3 stig eftir 9-0 stórsigur gegn Tindastól.

Sindri 2 – 1 Völsungur
1-0 Jóna Benny Kristjánsdóttir (21.)
1-1 Guðlaug Sigríður Magnúsdóttir (80.)
2-1 Heba Björg Þórhallsdóttir (83.)

Jóna Benny Kristjánsdóttir opnaði markareikning Sindrastúlkna með marki á 21.mínútu og kom Sindra í 1-0 og þannig var staðan þegar Miralem Haseta dómari leiksins flautaði til hálfleiks.

Guðlaug Sigríður Magnúsdóttir jafnaði metin fyrir Völsung á 80.mínútu í 1-1. Það var síðan Heba Björg Þórhallsdóttir sem skoraði sigurmark Sindra á 83.mínútu og tryggði Sindra öll þrjú stigin í dag.

Næsti leikur í B riðli 1.deildar kvenna er fimmtudaginn 12.júní þar sem Höttur og Völsungur eigast við á Vilhjálmsvelli kl. 20.00 en Höttur er með fullt hús stiga eftir 2 leiki.

Nýjustu fréttirnar