Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   mið 18. júní 2008 15:31
Hafliði Breiðfjörð
Ákall frá stelpunum okkar til íslensku þjóðarinnar
Kvennalandsliðið í Serbíu í maí
Kvennalandsliðið í Serbíu í maí
Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir á æfingu landsliðsins.
Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir á æfingu landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir
A-landslið kvenna mætir Slóveníu á Laugardalsvelli á laugardag og Grikklandi á fimmtudag í næstu viku. Með stuðningi þjóðarinnar eru stelpunum okkar allir vegir færir. Hjálpum þeim að láta drauminn rætast. Ísland á EM !!!

Til íslensku þjóðarinnar frá leikmönnum kvennalandsliðsins í knattspyrnu

Kæru Íslendingar,

Margrét Lára Viðarsdóttir
,,Okkar draumur er að komast á stórmót, þú getur hjálpað okkur að láta drauminn rætast.”

Ásta Árnadóttir
,,Þið voruð tólfti maðurinn síðast, endurtökum það aftur”

Sif Atladóttir
,,Að horfa upp í stúku og hlusta á alla syngja þjóðsönginn með okkur gaf manni þvílíka gæsahúð og fyllti mann þannig þjóðarstolti og það var aldrei að fara að koma til greina annað en að leggja lífið að veði fyrir sigur."

Hólmfríður Magnúsdóttir
,,Ég fæ aukna orku frá hverjum einasta áhorfenda sem mætir á Ísland – Slóvenía. Þið góðu landsmenn nær og fjær skiptið okkur mestu máli í þessari baráttu. Draumur minn er að spila á EM 2009 og þið getið hjálpað mér að láta hann rætast, sjáumst á vellinum, Áfram Ísland!"

Greta Mjöll Samúelsdóttir
,,Með áhorfendurna okkar á móti Serbíu var eins og við værum 12 inná vellinum”

Edda Garðarsdóttir
,,Mig langaði bara að stökkva upp í allan þennan fjölda í stúkunni og fagna með þeim, þetta var ein besta stund lífs míns. Sannaði að við getum spilað góðan fótbolta og að draumurinn okkar geti ræst.”

Þóra B. Helgadóttir
,,Það var ótrúlegt að sjá svona stóran hluta þjóðarinnar mættan til að styðja við bakið á okkur. Ég man að ég leit upp í stúku í þjóðsöngnum og stoltið var ólýsanlegt. Þjóðerniskenndin hefur aldrei verið meiri og það var ljóst að þjóðin ætlaði með okkur alla leið á EM."

Guðbjörg Gunnarsdóttir
,,Fjórtán tvö er fortíðin, Finnland er framtíðin. Upplifðu stemninguna og hjálpaðu okkur inní framtíðina”.


Erla Steina Arnadóttir
,,Mig langar rosalega að komast á EM 2009 en við þurfum áhorfendur til að hjálpa okkur í leikjunum, þetta var svakalega flott á móti Serbíu."

Ásthildur Helgadóttir
,,Það var svo gaman,
að sjá alla saman,
eldrauða í framan,
að ég táraðist...”


Guðný Petrína Þórðardóttir
,,Stuðningurinn var gríðarlegur og áhorfendur voru okkar tólfti maður inná vellinum”

Ólína G. Viðarsdóttir
,,Þetta var söguleg stund fyrir okkur allar og við fundum að þetta var byrjunin á einhverju stórkostlegu. Það var mikill heiður að fá að vera partur af þessu frábæra liði á þessari stundu”.

Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
,,Liðið styrkist með ykkar stuðningi, allir á völlinn!”

Katrín Jónsdóttir
,,Ísbjörninn Ófeigur kom siglandi á ísjaka til að tryggja sér miða. Það dugar þó að fara á miði.is ... ”

Katrín Ómarsdóttir
,,Vitandi af þjóðinni fylgjast með og standa við bakið á manni er einstakt og stórkostlegt. Myndi ekki skipta þeirri tilfinningu út fyrir 603.729 milljarða. Það er á svona stundum sem ég skil lífið. EM 2009 og Ísland, það er lífið!”

Dóra Stefánsdóttir
,,Það sem gerði leikinn við Serbíu svo ógleymanlegan var stuðningur og hvatning íslensku þjóðarinnar. Mómentið að heyra þjóðsönginn sunginn af 6000 áhorfendum skapaði ekki bara gæsahúð og auka hjartaslög, heldur efldi það baráttuhug og viljann til að bera sigur úr bítum. Fyrir landsliðið, fyrir Ísland. Nú er komið að næsta skrefi og stuðningur þjóðarinnar er ómetanlegur. Áfram Ísland!!”

Dóra María Lárusdóttir
,,Katrín Ómars ætlar að taka dansinn. Þú vilt ekki missa af þessu.”

Guðný Björk Óðinsdóttir
,,Ég fylltist þjóðarstolti þegar ég leit upp í stúkuna og allan skarann. Þið voruð frábær”

Virðingarfyllst,
A-landslið kvenna í knattspyrnu (sem lék síðasta heimaleik Íslands fyrir framan 6.000 syngjandi stuðningsmenn Íslands).

p.s. Það eru aðeins 9800 sæti á Laugardalsvelli. Af hverju getur ekki orðið uppselt á kvennalandsleik? Sjáumst á laugardaginn!

Ísland-Slóvenía laugardaginn 21. júní á Laugardalsvelli klukkan 14.00.
Ísland-Grikkland fimmtudaginn 26. júní á Laugardalsvelli klukkan 16.30.
Miðasala á www.midi.is

Athugasemdir
banner
banner