fös 20.jún 2008 06:00 Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Umfjöllun, úrslit og markaskorarar í 1.deild kvenna
Haraldur Sigfús fyrrverandi þjálfari ÍA og Lúðvík Gunnarsson núverandi þjálfari ÍA
Mynd: Einkasafn
Ester Harpa Vignisdóttir skoraði fimmta mark ÍA
Mynd: Einkasafn
Halldór Þ. Halldórsson þjálfari ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Orri Sigurðsson þjálfari Fjarðarbyggðar/Leiknis
Mynd: Ragnheiður Jónsdóttir
- TM styrkir umfjöllun Fótbolta.net um kvennaknattspyrnu
Þrír leikir fóru fram í 1.deild kvenna í kvöld. Tveir þeirra voru í A riðli, ÍA tók á móti Þrótt og vann 5-1 og ÍR tók á móti FH og vann 2-1. Í B riðli tók sameinað lið Fjarðarbyggðar og Leiknis á móti Sindra og tapaði 4-0 á Norðfjarðarvelli.

A-riðill

ÍA 5 – 1 Þróttur
1-0 Olaitan Yusuf (12.)
2-0 Marcia Silva (22.)
3-0 Olaitan Yusuf (23.)
4-0 Olaitan Yusuf (37.)
5-0 Ester Harpa Vignisdóttir (55.)
5-1 Ólöf Dröfn Matthíasdóttir (72.)

Fyrir leikinn var Þróttur í 3.sæti riðilsins og ÍA á botninum enn án stiga. Þetta var fyrsti leikur ÍA undir stjórn Lúðvíks Gunnarsson sem tók við af Haraldi Magnússyni sem var dæmdur í leikbann út árið eins og við greindum frá hér á Fótbolti.net á dögunum.

Erlendu leikmennirnir í liði ÍA fóru mikinn í fyrri hálfleik og voru búnar að skora 4 mörk áður en dómari leiksins flautaði til leikhlés. Olaitan Yusuf kom ÍA í 1-0 eftir að hafa platað varnarmenn Þróttar og Marcia Silva kom ÍA í 2-0 með fallegu skoti utan af kanti. Olaitan Yusuf bætti síðan við tveimur mörkum fyrir hálfleik og fullkomnaði þar með þrennu sína.

Í seinni hálfleik skoraði leikmaður ÍA,Ester Harpa Vignisdóttir stórglæsilegt mark þegar hún tók boltann á lofti og kom ÍA í 5-0.

Þróttarastúlkur náðu síðan að minnka muninn í 5-1 þegar Ólöf Dröfn Matthíasdóttir skoraði beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og lokatölur voru 5-1 stórsigur hjá ÍA.

Lúðvík Gunnarsson var gríðarlega ánægður í leikslok en þetta var hans fyrsti leikur með liðið

,,Það er auðvitað frábært að byrja með þessum hætti og í raun og veru ekki hægt að óska sér betra starti. Stelpurnar komu mjög einbeittar til leiks í okkar huga kom aldrei neitt annað til greina en að taka 3 stig. Liðsheildin var frábær og það var fyrst og fremst hún sem skóp þennan sigur. Ég er gríðarlega ánægður með mína leikmenn.”sagði Lúðvík.

Olaitan Yusuf var að spila sinn fyrsta leik og skoraði þrennu í leiknum og Marcia Silva eitt, við spurðum Lúðvík út í leikmennina.

,,Marcia er búin að vera hjá okkur síðan um miðjan maí og það stóð til að Ola kæmi líka þá. Það kom hins vegar smá babb í bátinn og Ola kom ekki til landsins fyrr en snemma á 17.júní sem þýðir að hún hefur aðeins æft einu sinni með okkur. Miðað við leikinn þá lítur hún ansi vel út. Marcia er einfaldlega frábær leikmaður. Hún getur spilað nánast hvaða stöðu sem er, hefur mikla reynslu og veit nákvæmlega út á hvað þetta gengur,”sagði Lúðvík um leikmennina tvo.

Þorleifur þjálfari Þróttar var að sama skapi ekki sáttur með sitt lið.

,,Við byrjuðum ekki leikinn og fengum á okkur 4 mjög ódýr mörk og það reyndist bara of stór biti. En það má ekki taka það af þeim að þær spiluðu vel og nýji útlendingurinn þeirra átti góðan leik og hélt bolta vel upp á topp sem við áttum í erfiðleikum með og hinar gengu á lagið. Þetta var bara ekki okkur til sóma og stelpurnar vita að þær eiga miklu meira inni. En svona er fótboltinn maður uppsker eins og maður sáir,” sagði Þorleifur um leikinn.

ÍR 2 - 1 FH
1 – 0 Margrét Sveinsdóttir (4.)
1 – 1 Guðrún Björg Eggertsdóttir (22.)
2 – 1 Marie Hastings (25.)

ÍR hafði farið vel af stað í deildinni fyrir leikinn og var með fullt hús stiga á toppnum eftir þrjá leiki. FH stúlkur voru fyrir leikinn með 3.stig eftir 2 leiki.

Enginn dómari mættur

Athygli vakti að leikurinn átti að hefjast kl. 20.00 á ÍR-velli og kl. 19.30 var enginn dómari mættur á leikstað. Starfsmenn ÍA hringdu þá í mótavakt KSÍ til að athuga með dómarann en þá komst upp að það hafði gleymst að láta dómarann vita af leiknum og öðrum dómara var reddað í snatri. Vegna atviksins hófst leikurinn ekki fyrr en 20.15 og er forvitnilegt að vita hvað gerst hefði ef starfsmenn ÍR hefðu ekki hringt og athugað með dómarann.

Það er áhugavert að vita hvað nákvæmlega fór úrskeiðis í þessum tiltekna leik og hvort að það sé nokkuð möguleiki á því að svona mistök eigi sér stað aftur.

Burt séð frá dómaramálum þá fóru leikar þannig að ÍR vann FH með tveimur mörkum gegn einu. Margrét Sveinsdóttir kom ÍR í 1-0 og Guðrún Björg Eggertsdóttir jafnaði metin á 22.mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Marie Hastings fyrir ÍR og kom sínu liði í 2-1.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og voru því lokatölur 2-1 ÍR í vil. ÍR er því á toppi A-riðils með fullt hús stiga eftir fjóra leiki.

B-riðill

Fjarðarbyggð/Leiknir 0 – 4 Sindri
0 – 1 Valdís Ósk Sigurðardóttir (17.)
0 – 2 Heba Björg Þórhallsdóttir (21.)
0 – 3 Jóna Benny Kristjánsdóttir (53.)
0 – 4 Jóna Benny Kristjánsdóttir (77.)

Sindri fór létt með sameinað lið Fjarðarbyggðar og Leiknis F. og burstuðu þær á Norðfjarðarvelli 4-0. Valdís Ósk Sigurðardóttir kom Sindra í 1-0 á 17.mínútu og Heba Björg Þórhallsdóttir bætti marki við fyrir hálfleik. Staðan var því 2-0 þegar Sigurjón Mikael Badeur dómari leiksins flautaði til hálfleiks.

Í seinni hálfleik héldu yfirburðir Sindra-stúlkna áfram og bætti Jóna Benny Kristjánsdóttir við tveimur mörkum áður en leiknum lauk. Jóna Benny er því orðin markahæst í B-riðlinum með 6 mörk eins og Hafrún Olgeirsdóttir í Völsungi sem er líka með 6 mörk. Lokatölur voru 4-0 og er Sindri á toppi B-riðils 1.deildar kvenna með 9 stig eftir 5 leiki. Völsungur og Höttur koma þar á eftir með 6 stig hvort en bæði liðin eiga 2 leiki til góða á Sindra.

Nýjustu fréttirnar