Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 12:00
Hafliði Breiðfjörð
RÚV sýnir Keflavík - FH bara á netinu
Úr viðureign Keflavíkur og FH á síðasta ári.
Úr viðureign Keflavíkur og FH á síðasta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stærsti leikur sumarsins til þessa fer fram í kvöld en þá mætast Keflavík og FH í 16 liða úrslitum VISA-bikars karla. Þarna eru að mætast liðin sem eru í 1. og 2. sæti Landsbankadeildarinnar og aukinheldur þau lið sem unnu bikarinn síðustu tvö ár. Ríkissjónvarpið er með útsendingarréttinn af VISA-bikarnum en ætlar að sýna leikinn á netinu.

,,Það er skoðun manna hér hjá okkur að við erum búnir að vera með þriggja vikna langt fótboltamót og því vilja menn aðeins passa sig á því að þetta verði ekki eingöngu íþróttarás," sagði Hrafnkell Kristjánsson íþróttastjóri á RÚV í gær þegar við báðum hann að útskýra þessa ákvörðun.

,,Mig langaði til að sýna þennan leik í beinni í sjónvarpinu en það komu upp skoðanir hér að það væri að æra óstöðugan að vera með fótboltaleik í beinni á svona kjörtíma svona strax ofan í Evrópumótið, jafnvel þó við færðum hann til átta."

,,Viðmiðið okkar var að koma inn í bikarkeppnina með beinar útsendingar í 8 liða úrslitum en nú hittist þannig á að það kemur stórleikur í 16 liða úrslitum og til að hunsa hann ekki alveg viljum við gera honum skil á netinu. Það hittist líka þannig á að það er sumarfrí tæknideildar sem hefur verið hér árlegur viðburður undanfarin ár, það stendur yfir í júlí og framyfir byrjun ágúst. Það gerir okkur erfiðara um vik að manna beinar útsendingar."

,,Í ljósi alls þessa langaði okkur að prófa þennan möguleika að sýna hann á netinu í ágætis gæðum. Það er örlítið minna í sniðum, ekki jafnmargar myndavélar, ekki sami stóri útsendingarbíllinn sem tekur líka mannskap, heldur minni útsendingarbíll, færri sem að því koma, og einfaldara að því leytinu til."

,,Í leiðinni er þetta leið sem menn horfa fram á veginn með. Netið fer að verða stærri hluti af svona útsendingum, auðvitað hafa landsleikir og svona stóriri viðburðir verið svona almannaþjónusta en einstaka leikir í deild eða bikar hafa kannski ekki alveg sömu skýrskotun. Netið er hinsvegar möguleiki til að sinna viðburðum og við sjáum það bara á fréttamiðlum úti í heimi að það er notað töluvert. Þetta er tilraun sem okkur langar að prófa núna."


Þrátt fyrir að þessi stórleikur í 16 liða úrslitunum verði aðeins í beinni útsendingu á netinu mun RÚV fjölga útsendingum í sjónvarpi frá bikarnum því Hrafnkell lofaði að lokum að sýnt verði beint frá leik í 8 liða úrslitunum þetta árið en það hefur ekki verið gert áður.

,,Þegar kemur að átta liða úrslitum þá erum við tilbúnir með alvöru útsendingu. átta liða úrslit, undanúrslit og úrslit verða í beinni útsendingu í sjónvarpinu," sagði hann að lokum.
Slapp