Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Aston Villa hafnar nýju tilboði frá Liverpool í Gareth Barry
Aston Villa hefur hafnað nýju tilboði frá Liverpool í miðjumanninn Gareth Barry en þetta staðfesti félagið í gærkvöldi.

Þessi 27 ára gamli enski landsliðsmaður var í gær sektaður fyrir að gefa News of the World viðtal án leyfis frá Aston Villa.

Villa hafnaði á dögunum tilboði frá Liverpool og í gær hafnaði félagið öðru tilboði. Fjölmiðlar á Englandi sögðu í gær að nýjasta tilboðið hljóðaði upp á 17 milljónir punda en Aston Villa segir það ekki rétt.

,,Fréttir í dagblöðum í dag, um 17 milljóna punda tilboð í Gareth Barry, eru ónákvæmlegar," sagði á heimasíðu Aston Villa í gær.

,,Félagið hefur fengið betra tilboð frá Liverpool en það er ekki nógu hátt fyrir Aston Villa og því hefur því verið hafnað," sagði einnig á heimasíðu Villa.

Sjá einnig:
Aston Villa sektar Barry fyrir ummæli sín
Slapp