Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 07:09
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Hughes vongóður um að fá Ronaldinho til City
Mark Hughes stjóri Manchester City vonast eftir því að geta fest kaup á Ronaldinho leikmanni Barcelona.

City gékk frá kaupunum á Jo frá CSKA Moskvu í gær fyrir 18 milljónir punda sem gerir hann að dýrasta leikmanni félagsins frá upphafi.

,,Hann er heimsfrægur og ef það gerist að við getum fengið hann þá mun það taka tíma og við erum róelgir," sagði Hughes.

,,Í þeim viðræðum sem hann hefur átt við félagið þá held ég að hann hafi verið jákvæður um þá hugmynd að koma hignað."

,,Á síðustu 18 mánuðum hefur hann ekki verið að spila á eðlilegri getu."

,,Við erum að bjóða honum tækifæri sem mun koma honum niður á jörðina og ná sér aftur á þann stall sem hann var á,"
sagði Hughes.

,,Ég held að það gæti verið áhugavert fyrir hann að koma, kannski er það sem við erum að gera hérna gott í stað þess að fara beint í félag sem er í Meistaradeildinni."

,,Ákvörðunin verður hans, að sjálfsögðu þar sem ég er viss um að hann mun fá mörg tilboð. Hvort hann velur okkur verður að bíða,"
sagði Hughes.
Slapp
banner
banner