Heimild: Sky
Andrei Arshavin gæti verið áhugasamur um að fara til Chelsea, segir talsmaður Zenit St Petersburg.
Arshavin hefur verið orðaður við för frá Zenit til marga stórliða í Evrópu eftir glimrandi frammistöðu hans á EM 2008 fyrir Rússland.
Talið var að Barcelona væri næst leikmanninum, en talsmaður Zenit segir að Chelsea hafi rætt við umboðsmann Arshavin og för frá Rússlandi yfir til London væri möguleiki.
,,Við viljum ekki selja Arshavin. Þess vegna viljum við einmitt eiga fund með honum og stjórnarmönnum, til þess að vita hvað hann vill," sagði talsmaður Zenit.
,,Ég held að hann vilji spila utan Rússlands. En hann er ekki eingöngu áhugsamur um för til Barcelona."
,,Chelsea er einnig í baráttunni. Andrei (Arshavin) útilokaði aldrei þann möguleika. Stjórnarmenn Chelsea vita hvernig staðan er og þeir hafa nú þegar talað við umboðsmann hans," sagði talsmaðu Zenit að lokum.



