Heimild: Sky
Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United og portúgalska landsliðsins mun þurfa að gangast undir aðgerð um helgina vegna meiðsla á hægri ökkla.
Starfslið Manchester United hittu Ronaldo og læknalið Portúgals í gærdag til að ákveða hvað gera skildi í sambandi við meiðsli hans á hægri ökkla sem hefur verið að bjaga leikmanninn.
Samkvæmt fréttastofa Skysports þá töldu þeir best að hann skildi fara undir hnífinn um helgina til að hlúa að meiðslunum.
Þessi hittingur hjá Ronaldo og starfsliði United var í fyrsta skiptið sem að aðilarnir tala saman eftir að hann var orðaður við Real Madrid.
Ronaldo, sem er 23 ára gamall átti að hafa frestað aðgerðinni eftir Evrópumótið í Austurríki og Sviss, og í þeim tilgangi að fá lengra frí í sumar.
Aðgerðin mun halda Ronaldo frá æfingum út undirbúningstímabilið, en United vona að stjörnuleikmaður þeirra muni mæta til æfinga á ný og spila fyrsta leik deildarinnar gegn Newcastle 16. ágúst á Old Trafford.


