Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 10:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Hull City í viðræðum við Geovanni, Mendy og Boateng
Hull City er að vinna í að styrkja lið sitt þessa dagana en félagið komst upp í ensku úrvalsdeildina á vormánuðum.

Hull hefur átt í viðræðum við hinn brasilíska Geovanni en hann er án félags eftir að hafa yfirgefið Manchester City nýlega.

Einnig talið að Phil Brown stjóri Hull hafi flogið til Hollands til að ræða við George Boateng leikmann Middlesbrough.

Auk þess er Hull á eftir franska varnarmanninnum Bernard Mendy. Samdporia og Werder Bremen eru einnig á eftir honum en talið er að Hull standi best að vígi í baráttunni.

Viðræður félagsins við Geovanni og Mendy eru það langt á veg komnar að ekki er ólíkegt að þeir skrifi undir í vikunni og fari með liðinu í æfingaferð um næstu helgi.
Slapp
banner
banner