Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 15:10
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Ousmane Dabo: Joey Barton er heigull
Ousmane Dabo, leikmaður Lazio telur fyrrum liðsfélaga sinn Joey Barton heigul þrátt fyrir að hafa játað á sig árásina á þeim fyrrnefnda.

Síðastliðinn þriðjudag játaði Joey Barton, leikmaður Newcastle að hafa ráðist á Ousmane Dabo á æfingasvæði liðsinsþegar þeir voru liðsfélagar hjá Manchester City síðasta sumar en Dabo er í dag hjá Lazio.

Barton, sem er 25 ára gamall átti að fara í réttarhöld á mánudaginn, en ákvað í staðinn að játa á sig sökina rétt áður en hann mætti dómaranum.

Dabo segir útkomuna á réttarhöldunum frábær niðurstaða fyrir hann og kallaði Barton heigul í kjölfarið.

,,Ég missti nærrum því augað og þetta var hræðilegur dagur, þetta skaðaði mig ekkert langvarandi, en ég er sáttur með útkomuna," sagði Dabo.

,,Þetta var ekkert mál þar sem Barton játaði sig sekan strax og þurfti ekki að leggja fram nein sönnunargögn á borðið. Þetta segir fólki margt um mig, og að mín útgáfa af málinu var sú rétta og er ég ánægður að þessu er lokið."

,,Barton játaði að hafa hegðað sér heigulslega, enda er hann heigull. Við hittumst á mánudaginn, ég sat í einu horni og hann öðru. Hann talaði hvorki við mig né baðst afsökunar og tel ég það gott að þurfa ekki að sjá hann aftur;"
sagði Dabo.

Dabo gagnrýndi einnig vinnubrögð Newcastle í þessu máli, sem hann telur eiga að rifta samning Barton, en liðið og leikmaðurinn mun halda viðræður um framtíð hans á næstunni.

,,Ensk lið kenna manni margar góðar lexíur, en ég tel vinnubrögð Newcastle slök í þessu máli."

,,Þeir hafa eitt hárri fjárhæð í leikmanninn og vilja skiljanlega ekki tapa þeim peningum. Liðinu er sama um lögin og það kemur mér í opna skjöldu,"
sagði Dabo að lokum.

Barton mun því vera í fangelsi fjóra mánuði ofan á þess sex mánuði sem hann fékk fyrir líkamsárásina Í Liverpool, en mögulegt er að hann losni fyrr en búist var við, en ef hann afplánar allan dóminn þá myndi hann aldrei sleppa út fyrr en í mars mánuði á næsta ári.
Slapp