Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 10:30
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið - Arshavin til Chelsea eða Arsenal?
Þá er komið að slúðrinu á þessum fína degi en í dag er Chelsea mikið í umræðunni. Að venju var það BBC sem tók saman.

Barcelona ætla að hækka boð sitt í Emmanuel Adebayor leikmann Arsenal. (The Guardian)

Arsene Wenger þjálfari Arsenal leiðir kapphlaupið um að fá Andrei Arshavin leikmann Zenit. (The Sun)

En Arshavin er í raun á leið til Chelsea en Zenith hefur samþykkt tilboð Chelsea í Arshavin. (Daily Mirror)

Chelsea hafa boðið Frank Lampard 140 þúsund pund á viku til að hann fari ekki til Inter. (Daily Express)

Það er mikið að gera hjá Chelsea því Scolari vill að Didier Drogba verði seldur. (The Sun)

Scolari vill líka losna við Florent Maloud og skipta honum upp í Samuel Eto´o framherja Barcelona. (The Sun)

Fulham ætla að reyna að fá Dave Kitson framherja Reading vegna þess að Diomansy Kamara verðu frá í langan t íma. (The Sun)

Hakin Yakin framherjinn frá Sviss gæti líka verið á leið til Fulham. (Daily Mail)

Portsmouth munu leggja fram lokatilboð í Peter Crouch uppá 10 milljónir punda. (Daily Mirror)

Portsmouth hefur nú sett allt á fullt til að reyna að fá Shaun Wright Phillips frá Chelsea. (Daily Star)

Hull vill ffá Georgios Samaras frá Manchester City fyrir næstu leiktíð. (Daily Mirror)

David Bentley vill enn fara frá Blakcburn eftir að Paul Ince mistókst að telja honum trú um að vera áfram. (Daily Mirror)

Þá vill Christoper Samba líka fara frá Blackburn og hefur Manchester City áhuga á honum. (Daily Star)

Bolton bíða eftir svari frá Sporting Lisbon vegna Simon Vukcevic. (Daily Mirror)

Manchester United hafa boðið aðstoðarmanni Ferguson, Carlos Queiroz launahækkun til að hann hafni því að taka við Portúgal. (Ýmsir miðlar)

En Queiroz ætlar að taka tilboðinu sem gæti þýtt að Cristiano Ronaldo fer frá United. (Ýmsir miðlar)

Hugsanleg félagaskipti Ronaldo til Real Madrid gætu verið í hættu vegna meiðsla á ökkla. (Various)
Slapp
banner
banner