Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 10:32
Hafliði Breiðfjörð
Valur fer til Slóvakíu í Evrópukeppni kvenna
Gætu mætt Umeå í annarri umferð
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Vals var nokkuð óheppið þegar dregið var í riðla í Evrópukeppni kvenna nú í morgun því þær munu þurfa að fara í langt ferðalag og leika riðil sinn í Slóvakíu.

Ásamt Val í riðlinum eru lið Maccabi Holon frá Ísrael, Cardiff City konur frá Wales og heimastúlkur í Slovan Duslo Šaľa.

Aðeins sigurvegarar riðlanna sem eru spilaðir 4. - 9. september næstkomandi munu fara upp í aðra umferð keppninnar en þar bætast við sjö sterkustu lið Evrópu.

Ef Valur kemst áfram í keppninni munu þær þurfa að mæta liði Umeå frá Svíþjóð sem er eitt allra sterkasta kvennalið heims í dag í annarri umferðinni og ASD CF Bardolino Verona í annarri umferðinni. Þar þurfa þær að vera í einu af tveimur efstu sætum fjögurra liða riðils til að komast í átta liða úrslit.

Slapp
banner
banner
banner