Norska meistaraliðið Brann mun ganga frá kaupunum á Valsmanninum, Birki Má Sævarssyni, í næstu viku. Þetta staðfesti Roald Bruun-Hanssen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Brann, í samtali við Fótbolti.net í dag.
,,Félagaskiptin verða ekki frágengin fyrr en í næstu viku. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð, 1,3 milljónir norskra króna (rúmar 20 milljónir íslenskar krónur), en Birkir sjálfur á eftir semja um kaup og kjör, sagði Bruun-Hanssen en kaupverðið mun hækka þegar Birkir hefur spilað ákveðinn leikjafjölda með Brann.
,,Félögin hafa einnig gert samning sín á milli um að Birkir spili næstu þrjá leiki með Val áður en hann kemur til Noregs í samningaviðræður við Brann,” sagði Bruun-Hanssen ennfremur. Forráðamenn norska liðsins lögðu einnig áherslu á að Birkir spilaði ekki með Val í Evrópukeppninni því Brann mun taka þátt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og mun Birkir væntanlega spila þar stóra rullu.
Birkir á að baki nokkra landsleiki fyrir Íslands hönd auk þess að vera byrjunarliðsmaður í sterku Valsliði. Bruun-Hanssen gerir ráð fyrir því að Birkir muni gera atlögu að sæti í byrjunarliði Brann strax við komuna til Noregs.
,,Það mun bara koma í ljós hversu fljótt hann mun aðlaga sig þegar hann byrjar að æfa og spila með liðinu. Við höfum fylgst náið með honum í leikjum með Val og íslenska landsliðinu í sumar og það er ljóst að hann er hæfileikaríkur leikmaður. Við höfum því fulla trú á því að hann komi til með að berjast um byrjunarliðssæti strax frá byrjun annars hefðum við ekki farið út í þessi kaup,” sagði Bruun-Hanssen að lokum við Fótbolti.net.



