Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 11:02
Hafliði Breiðfjörð
Elísabet Gunnars: Vonast eftir sólbaði við Garda vatnið
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í morgun var dregið í riðla í Evrópukeppni félagsliða kvenna og Íslandsmeistarar Vals voru í pottinum. Valur fer til Slóvakíu þar sem þeirra riðill verður leikinn og mætir þar heimastúlkum í Slovan Duslo Šaľa, Maccabi Holon frá Ísrael og liði Cardiff City frá Wales.

,,Mér líst mjög vel á þennan drátt, ég hefði kannski kosið að ferðast eitthvað nær en ég held að riðillinn sé góður," sagði Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Vals í samtali við Fótbolta.net í gær.

,,Ég þekki liðin náttúrulega ekki neitt en ef ég ætti að horfa í einhverja styrkleikalista þá ætti þetta að henta okkur vel og við ættum að komast áfram."

Öll þessi lið eru ný fyrir Val enda hefur liðið aldrei mætt þeim áður í Evrópukeppni. Elísabet ætlar að reyna að kynna sér liðin og sjá gengi þeirra í Evrópukeppni áður og athuga hvorthún geti fengið myndbönd af þeim.

,,Ég þekki þessi lið ekki neitt, nú þarf ég að fara að skoða einhver úrslit aftur í tímann og skipuleggja ferð til Ísraels," sagði Elísabet og hló. ,,Nei ég reyni að fá myndbönd af liðunum en ég held að það yrði mjög erfitt."

Það lið sem vinnur riðilinn í Slóvakíu mun komast upp í milliriðla og mætir þar stórliði Umeå frá Svíþjóð sem hefur hina brasilísku Mörtu innanborðs en hún er besta knattspyrnukona heims í dag.

Auk Umeå er þegar ljóst að lið ASD CF Bardolino Verona frá Ítalíu verður í riðlinum auk fjórða liðsins sem ekki er enn ljóst hvert verður en tvö lið komast svo úr þeim riðli í 8 liða úrslit.

,,Það var drauma framhaldsriðillinn minn. Það væri frábært að komast þangað. Við spáum frekar í þennan riðil þegar nær dregur en ef við förum upp úr fyrsta riðli þá held ég að það sé heppilegt fyrir okkur að vera í þessum riðli," sagði Elísabet og hélt áfram.

,,Ég tel að þetta sé riðill sem við eigum möguleika á. Það er líka gaman að komast í það að spila við lið sem við höfum ekki spilað við áður. Það væri gaman að komast í þennan riðil."

,,Ég vonast til að Ítalía muni halda riðilinn því þá gæti ég verið í sólbaði við Garda vatnið á Ítalíu,"
sagði hún svo aftur í léttum tón.

,,Við einbeitum okkur bara að fyrsta riðli en við vitum ekkert um þessi lið svo ég ætla ekki að gera ráð fyrir að fara í aðra umferð en við stefnum að sjálfsögðu að því," sagði hún.

Riðillinn er leikinn 4. - 9. september næstkomandi og strax í kjölfar þess fer fram lokamferðin í Landsbankadeild kvenna, 13. september. En mun ferðalagið ekki hafa truflandi áhrif á liðið fyrir lokaummferðina?

,,Ég held að það sé erfitt að ferðast svona langt en við munum skipuleggja það vel og látum það ekki hafa áhrif á okkur," sagði Elísabet að lokum.
Slapp
banner
banner