Eins og Fótbolti.net greindi frá fyrir fáeinum dögum fylgdist útsendari á vegum norska meistaraliðsins Brann með Guðmundi Reyni Guðmundssyni, vinstri bakverði hjá KR, í leik liðsins gegn HK í síðustu viku.
Roald Bruun-Hanssen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Brann, sagði í samtali við Fótbolta.net í gær að útsendarar á vegum félagsins hafi fylgst með nokkrum íslenskum leikmönnum í þeirri stöðu auk Guðmundar í Landsbankadeildinni undanfarið.
,,Guðmundur er ekki sá eini sem við höfum skoðað. Við höfum fylgst með nokkrum íslenskum vinstri bakvörðum í sumar en ég get ekki farið nánar út í þá sálma," sagði Bruun-Hanssen í samtali við Fótbolta.net
,,Við munum skoða þau mál gaumgæfilega en eins og málin standa höfum við einungis komist að samkomulagi við Val um kaup á Birki (Sævarssyni) og við tjáum okkur einungis um það eins og er.”
Brann mun ganga frá kaupunum á Birki Má Sævarssyni, leikmanni Vals, í næstu viku og verður hann þar með fimmti Íslendingurinn á mála hjá félaginu. Ekki er loku fyrir það skotið að sá sjötti skjóti upp kollinum innan tíðar ef marka má orð Bruun-Hanssen.
Hins vegar er félagið einnig að skoða vinstri bakverði á hinum Norðurlöndunum.



