Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður Brann í Noregi, sem hefur verið frá æfingum og keppni síðustu daga vegna eymsla í brjóstkassa er á góðum batavegi.
Forráðamenn félagsins vonast til þess að hann verði orðinn leikfær um helgina þegar liðið fær Bodö/Glimt í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni.
,,Honum líður miklu betur núna. Það er hins vegar óljóst hvort hann verður orðinn leikfær fyrir leikinn á laugardaginn en vonandi verður hann það. Batinn hefur verið jákvæður og það er einungis dagaspursmála hvenær hann verður orðinn heill heilsu og leikfær á nýjan leik,” sagði Roald Bruun-Hanssen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Brann, í samtali við Fótbolti.net í dag.




