Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 13:02
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: BBC 
Mascherano missir af byrjun tímabilsins - Fer á Ólympíuleikana
Javier Mascherano miðjumaður Liverpool hefur verið valinn í argentínska landsliðið sem tekur þátt í Ólympíuleikunum í ágúst.

Þessi 24 ára gamli miðjumaður er einn af þremur sem eru yfir 23 ára aldurinn.

Mascherano mun því missa af byrjun enska tímabilsins sem og forkeppni Meistaradeildarinnar.

Ásamt Mascherano verða þeir Lionel Messi leikmaður Barcelona og Sergio Aguero leikmaður Atletico Madrid í hópnum.
Slapp
banner
banner
banner