,,Þetta er algjör draumur. Þetta hefur verið draumurinn síðan maður byrjaði að sprikla á Hlíðarenda fimm ára gamall. Þetta er risaskref. Vonandi er maður tilbúinn og lætur til sín taka strax. Ég stefni á að komast fljótlega í byrjunarliðið og halda mér þar," sagði Birkir Már Sævarsson leikmaður Vals við Fótbolta.net í dag en hann er á leið til norsku meistaranna í Brann.
,,Félögin náðu saman í gær eftir 2-3 daga viðræður. Síðan fékk ég samningstilboðið í hendurnar í gær. Ég á eftir að skoða það betur en að öllu óbreyttu mun ég skrifa undir milli 10-15.júlí."
,,Ég heyrði fyrst af þessu eftir Ísland-Wales og síðan komu þeir að horfa á Valur-FH og þá vissi ég af þeim," sagði Birkir en hann var ekkert stressaður í þeim leik þrátt fyrir að útsendarar væru að fylgjast með.
,,Ég var mjög slakur, ég reyndi bara að standa mig eins og alltaf. Maður reynir alltaf að standa sig fyrir klúbbinn sinn."
Brann varð eins og fyrr segir norskur meistari í fyrra en Birkir Már þekkir ekki mikið til félagsins. ,,Ég á eftir að fara út og sjá völlinn, æfingasvæðið og allt en ég er búinn að skoða eitthvað á netinu."
Ármann Smári Björnsson, Gylfi Einarsson, Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason eru allir á mála hjá Brann og Birkir segir gott að aðrir Íslendingar séu hjá félaginu.
,,Það er algjör klassi. Ég spilaði eitt tímabil með Ármanni Smára og þekki hann ágætlega og síðan hef ég leikið einn eða tvo landsleiki með Kristjáni Erni."
Birkir Már var efnilegasti leikmaður Landsbankadeildarinnar árið 2006 en hann hefur farið vaxandi sem leikmaður undanfarin ár. Hann var í skóla í Bandaríkjunum og kom heim vorið 2005. Það sumar lék hann einungis einn leik með Val en árið eftir fékk hann tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það til fullnustu.
,,Maður fékk bara tækifærið loksins. Þetta er þrotlaus vinna og æfingar. Ég setti mér markmið og það er allt að ganga núna."
,,Ég var þolinmóður 2005. Ég vissi að menn í liðinu höfðu æft allan veturinn og ég mér fannst ég ekki eiga rétt á því að koma frá Bandaríkjunum og beint inn í liðið. Ég reyndi að mæta kátur á allar æfingar og í leiki, gerði mitt besta og reyndi að sýna þjálfaranum að ég ætti þetta skilið. Loksins þegar að tækifærið kom þá nýtti ég það," sagði Birkir Már en hann hefur lagt mikið á sig og æft aukalega undanfarin ár.
,,Maður er eiginlega alltaf með boltann við tærnar og er alltaf að reyna að bæta sig. Ég setti mér markmið og til að ná þeim þá þarf maður að leggja á sig og það er að skila sér núna," sagði Birkir Már Sævarsson að lokum við Fótbolta.net.

