Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 13:20
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Sky Sports 
Messi dreymir um að spila á Ítalíu
Lionel Messi vonast til að spila í ítölsku A deildinni í framtíðinni en þetta segir faðir leikmannsins, Jorge en hann er líka umboðsmaður hans.

Ólíklegt þykir að Barcelona sé tilbúið að selja Messi enda einn allra besti leikmaður heims þar á ferð. En þessar fréttir verða til þess að Inter, Milan og Roma verði öll tilbúinn að bjóða í hann ef eitthvað meira gerist.

„Í augnablikinu þá erum við bara að hugsa um Barcelona, sem er eins og annað heimili fyrir Leo. Hann vill bæta upp fyrir öll meiðslin sín en það er klárlega draumur allra leikmanna að spila á Ítalíu og sonur minn er engin undantekning," sagði Jorge Messi.

Inter hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á leikmanninum og mun Massimo Moratti, forseti Inter, væntanlega taka þessum fréttum glaðlega.

„Við skulum segja að Inter hafa ekki haft formlegt samband. Ekket formlegt. Ég vil ekkert bæta við það. Eins og ég segi þá gæti hlutirnir breyst í framtíðinni," bætti Jorge við.
Slapp
banner
banner