Denis Curic, framherji Hauka, mun á mánudaginn fara til ítalska liðsins Triestina á reynslu en félagið leikur í Serie B. Þetta staðfesti Curic við Fótbolta.net í dag.
Curic kom til Hauka frá Hetti fyrir tímabilið og hefur farið mikinn í sumar og skorað átta mörk í níu leikjum í fyrstu deildinni.
Í gær skoraði þessi 21 árs gamli Slóveni einnig sigurmarkið þegar að Haukar slógu HK út úr Visa-bikarnum.
Curic mun leika með Haukum gegn Þór í fyrstu deildinni á laugardag en hann heldur síðan út til Ítalíu á mánudag.
Standi hann sig vel hjá Triestina gæti hann fengið þriggja ára samning hjá félaginu.
Triestina endaði í 17.sæti í Serie B á síðustu leiktíð en liðið hefur leikið þar síðan árið 2002.




