Valur og Fram hafa staðfest söluna á Henrik Eggerts en eins og við greinum fyrstir frá í gær var hann í viðræðum við þá.
Yfirlýsing Vals og Fram
Danski miðvallarleikmaðurinn Henrik Eggerts er genginn til liðs við Íslandsmeistara Vals. Eggerts sem er 32 ára hefur verið í herbúðum Fram frá 1. ágúst 2007. Hann kom við sögu í 7 leikjum Fram í fyrra og hefur komið inn á í tveimur leikjum Fram á yfirstandandi leiktíð.
Aðdragandinn að þessum vistaskiptum Eggerts nú var skjótur og var málið unnið í góðri sátt milli félaganna tveggja. Kaupverðið er trúnaðarmál. Henrik Eggerts verður löglegur með Val 15. júlí nk.
Knattspyrnudeild Vals
Fram Fótboltafélag



