Willum Þór Þórsson þjálfari Vals er ánægður með að hafa náð að klófesta Henrik Eggerts frá Fram en í dag skrifaði Henrik undir samning við Valsara.
,,Ég er virkilega sáttur með að fá hann, við erum að missa mann þannig að það er gríðarlega gott að fá sterkan leikmann í hópinn," sagði Willum Þór í samtali við Fótbolta.net í dag.
Henrik getur bæði spilað sem kantmaður og sóknarmaður og telur Willum hann geta leyst ýmsar stöður.
,,Ég held að hann geti nú leyst ýmislegt, báðar vængstöðurnar, toppstöðuna og jafnvel inná miðjuna en það fer eftir skipulaginu sem við erum að spila hverju sinni."
Hann hefur aðeins leikið tvo leiki með Fram í sumar sökum meiðsla og Willum segir það svolítið áhyggjuefni.
,,Ég er eilítið smeykur við það, við þurfum bara að skoða það. Hann fer auðvitað í læknisskoðun en það er eitthvað sem þýðir ekkert að vera að binda sig við," sagði Willum sem segir að Henrik hafi hrifið sig.
,,Það sem ég hef séð til hans hefur hrifið mig, hann er virkilega teknískur og skapandi leikmaður."
Valsarar misstu einn sinn allra besta leikmann en Birkir Már Sævarsson er á leið til Brann og mun á næstu dögum skrifa undir samning við félagið. Hann mun þó leika næstu þrjá leiki með Val.
,,Það er auðvitað í senn ánægjulegt fyrir hans hagi en það er mjög erfitt fyrir okkur enda einn af okkar allra bestu leikmönnum, bæði er hann hörku varnarmaður og á tíðum einn af okkar bestu sóknarmönnum."
,,Við erum að missa einn okkar besta leikmann það er okkur alveg ljóst en við samfögnum honum því hann á þetta fyllilega skilið," sagði Willum sem á ekki von á því að fá leikmann til að leysa stöðu Birkis.
,,Við reynum að fylla hans stöðu í hópnum en við erum búnir að bregðast við með því að fá sterkan leikmann."
Willum segir ekkert ákveðið hvort fleiri leikmenn muni ganga í raðir Vals í félagaskiptaglugganum. ,,Ekkert frekar, ekki nema að það sé eitthvað sem getur styrkt hópinn," sagði Willum að lokum í samtali við Fótbolta.net.



