Heimild: Sporting Life
Framherjarnir Paul Dickov og Emile Mpenza og miðjumaðurinn Geovanni hafa yfirgefið Manchester City.
Dickov, sem er 35 ára, fékk ekki tækifæri hjá City á síðustu leiktíð og var lánaður til Crystal Palace og Blackpool.
Geovanni kom til City síðastliðið sumar og gerði eins árs samning en hann er núna farinn og hefur Hull City átt í viðræðum við hann.
Mpenza, sem er frá Belgíu, er síðan farinn frá Manchester City eftir sextán mánaða dvöl hjá félaginu.
Annar framherji, Filippo Mancini, hefur einnig yfirgefið enska félagið en hann er sonur Roberto Mancini.




