Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 16:25
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Aston Villa kaupir Curtis Davies (Staðfest)
Aston Villa hefur keypt varnarmanninn Curts Davies frá West Bromwich Albion en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Davies var í láni hjá Aston Villa en meiðsli settu strik í reikninginn á tímabilinu.

Davies er ennþá meiddur og óvíst er hvort að hann verði klár fyrir byrjun tímabilsins en hann hefur nú gert fjögurra ára samning við Aston Villa.

Þessi 23 ára gamli leikmaður ætlar að reyna að vera klár í slaginn þegar að Aston Villa mætir WBA þann 20.september.

,,Ég held að allir viti hvaða leik ég stefni á. Þetta er mjög tæpt en ég tel að ég geti verið klár fyrir þennan leik," sagði Davies við heimasíðu Aston Villa.
Slapp
banner
banner
banner