Heimild: Le Quotidien
Forráðamenn Grevenmacher frá Lúxemborg sem verða mótherjar FH í UEFA bikarnum síðar í þessum mánuði eru ánægðir með dráttinn og segjast eiga góða möguleika á að komast áfram í næstu umferð.
,,Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að komast áfram,” sagði Claude Osweiler, þjálfari Grevenmacher, eftir dráttinn á þriðjudaginn.
Dagblaðið Le Quotidien heldur því fram að möguleikar Grevenmacher á að komast í næstu umferð séu miklir. Tímarnir sér breyttir frá því liðið féll úr UEFA keppninni fyrir hendi KR-inga fyrir rúmum áratug síðan og leikmenn liðsins geti farið í leikina við FH fullir sjálfstrausts.
Fyrri leikur liðanna fer fram 17.júlí í Kaplakrika en síðari leikurinn fer fram í Lúxemborg tveimur vikum síðar.


