Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
ÍR heimsækir Aftureldingu í kvöld í toppslagnum í annarri deild karla. Því er tilvalið að kíkja á steminguna hjá þessum liðum í dag.
Baldvin Jón Hallgrímsson fyrirliði ÍR-inga svaraði nokkrum spurningum en svörin má sjá hér að neðan.
Hvernig er stemmningin hjá ÍR þessa dagana?
Hún er meiriháttar, þó svo að við höfum fengið nokkra furðufugla til liðs við okkur þá hafa þeir fallið vel í okkar hóp og hafa staðið sig með miklum sóma..
Hvernig er stemningin fyrir leiknum í kvöld?
Við bíðum spenntir eftir þessum leik enda er alltaf gaman að spila svona toppleiki. Afturelding er með mjög sterkt lið og við gerum okkur fulla grein fyrir því að við þurfum að eiga toppleik í kvöld ætlum við að leggja þá af velli..
Hefur þú séð mikið til Aftureldingar í sumar?
Ég hef farið á 2 leiki með þeim í sumar og báðir hafa unnist frekar sannfærandi, þetta er vel skipulagt lið, þeir eru þéttir fyrir og massífir og með senter sem getur klárað leiki uppá sitt einsdæmi. Þetta er lið sem á að geta farið upp í sumar. Óli er klárlega að gera mjög góða hluti með þetta lið..
Er mikill fótboltaáhugi í Neðra-Breiðholti?
Já það hefur aukist til muna enda þegar vel gengur þá eykst umtal og áhugi..
Er leikmannahópurinn mikið breyttur frá því í fyrra?
Já hann hefur breyst mikið. Það hafa margir yfirgefið okkur og 3 lögðu skóna á hilluna ( sökum elli ) en við fengum klassa leikmenn í þeirra stað..
Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Ég er mjög sáttur við þetta ár, við höfum staðið okkur mjög vel, bæði í vetur og nú í sumar. Við unnum bæði Reykjavíkurmótið og deildarbikarinn og erum efstir í deildinni ásamt Aftureldingu. Þó að við höfum kannski ekki spilað okkar bestu leiki síðustu 2 - 3 leiki þá höfum við unnið þá og það er mikill styrkur og karakter..
Hver er helsti styrkleiki ykkar?
ÉG............... Við erum samheldinn hópur og náum vel saman og erum að klára leikina sem vantaði svolítið í fyrra. Við erum í fínu standi, gefum fá færi á okkur og með mjög góðan markmann og leikmenn sem geta haldið bolta vel og klárað sín færi. Svo höfum við góða þjálfara og góða menn í kringum liðið.. Og svo náttúrulega EYJÓ..
Hvert er markmið liðsins í sumar?
Beint upp..
Hefur eitthvað komið þér á óvart í byrjun móts í annarri deildinni?
Bjóst kannski við Hvöt ofar og auðvitað Völsungum líka þar sem þeir eru með þjálfara sem er einstaklega fljótur að synda í kafi.. En það er nóg eftir af þessu móti og mikið eftir að breytast..
Eitthvað að lokum?
Hvet alla ÍR-inga að fjölmenna á leikinn í kvöld og rífa upp stemninguna með trommum og látum og fögrum söng.
Eldra úr liðnum hvað er að frétta?
1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)
2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)
3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)


