Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 04. júlí 2008 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Leikir dagsins hér heima - Toppslagur í 2.deild karla
Afturelding og ÍR mætast í kvöld.
Afturelding og ÍR mætast í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Njarðvík og Leiknir mætast í 1.deildinni.
Njarðvík og Leiknir mætast í 1.deildinni.
Mynd: Víkurfréttir - Þorgils Jónsson
Sj0 leikir fara fram hér á landi í kvöld og meðal annars er toppslagur í annarri deild karla þar sem Afturelding tekur á móti ÍR.

Þessi lið eru bæði með 22 stig í tveimur efstu sætum deildarinnar. Bæði eru þau með 14 mörk í plús en ÍR-ingar eru á toppnum þar sem þeir hafa skorað einu marki meira en Afturelding.

Í Reykjanesbæ er ekki síður mikilvægur leikur í kvöld en þá mætast Njarðvík og Leiknir R. í fallslag. Njarðvík er í ellefta og næstneðsta sæti með sex stig en Leiknir er í tólfa sæti með fimm stig. Leikurinn er því lífsnauðsynlegur fyrir bæði lið.

Þá fara fram fimm leikir í þriðju deild karla í kvöld en leikið er í A, B og C riðli. Allir á völlinn!


1. deild karla:
20:00 Njarðvík - Leiknir R. (Njarðvíkurvöllur)

2.deild karla:
20:00 Afturelding - ÍR (Varmárvöllur)

3.deild karla - A riðill:
18:45 Berserkir - KFS (Víkingsvöllur)
20:00 KV - Ægir (KR-völlur

3.deild karla B riðill:
20:00 Þróttur Vogum - Hvíti riddarinn (Vogavöllur)

3.deild karla C riðill:
20:00 Augnablik - Afríka (Smárahvammsvöllur)
20:00 Skallagrímur - Ýmir (Skallagrímsvöllur)
Slapp
banner