Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 03. júlí 2008 18:18
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Kanu: Ég verð áfram hjá Portsmouth
Kanu, leikmaður Portsmouth segir að það séu engin vandamál í samningaviðræðum hans við félagið.

Kanu á eftir eitt ár af samningi sínum við félagið og hann sagði í síðasta mánuði að hann ætti skilið meira en eins árs samning eftir að hafa tryggt liðinu sigur í FA bikarnum.

,,Það eru engin vandamál í samningaviðræðunum," sagði Kanu við nígeríska vefsíðu.

,,Það eru bara nokkur atriði sem að þarf að taka fyrir. En ég mun skrifa undir samninginn."

Portsmouth fer í æfingaferð til Nígeríu, heimalands Kanu og segir hann að hann gæti undirritað samninginn þar.

,,Ég vil vera áfram hjá Portsmouth. Kannski mun ég skrifa undir samninginn í Nígeríu," bætti Kanu við.
Slapp
banner