Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 03. júlí 2008 21:31
Hörður Snævar Jónsson
Umfjöllun: Jóhann Berg skaut Blikum áfram
Jóhann Berg sem hér er í baráttu við Atla Svein í leiknum skoraði.
Jóhann Berg sem hér er í baráttu við Atla Svein í leiknum skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Nenad Zivanovic með boltann í leiknum.
Nenad Zivanovic með boltann í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Marel Baldvinsson og Bjarni Ólafur í baráttu.
Marel Baldvinsson og Bjarni Ólafur í baráttu.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Breiðablik 1 - 0 Valur
1-0 Jóhann Berg Guðmundsson (67)

Breiðablik tók á móti Val í 16-liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld en þessi lið höfðu mæst einu sinni áður í sumar en þá unnu Valsarar 1-0 á Vodafone vellinum.

Á 17. mínútu fengu Blikar sitt fyrsta hættulega færi þegar hann fékk boltann frá Marel Baldvinssyni en skot hans fór yfir markið.

Stuttu síðar átti sér stað skondið atvik þegar Jóhannes Valgeirsson dómari datt þegar hann og Pálmi Rafn Pálmason skullu saman.

Þegar 27 mínútur voru búnar af leiknum fengu Blikar dauðafæri en Marel Baldvinsson fékk sendingu frá Jóhanni Berg sem vann boltann og keyrði af stað og gaf á Marel en honum tókst ekki að skora.

Stuttu síðar fékk Pálmi Rafn Pálmason fínt færi en hann þurfti að teygja sig í boltann og náði ekki að skora.

Í uppbótartíma fékk Arnór Sveinn Aðalsteinsson dauðafæri. Kristinn Jónsson tók hornspyrnu frá hægri sem fór beint á kollinn á Arnóri sem var einn og óvaldaður en skallaði beint á Kjartan.

Þetta var það síðasta markverða sem gerðist í fyrri hálfleiknum og staðan var því 0-0 í hálfleik

Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks fékk Marel Jóhann Baldvinsson dauðafæri en Kjartan Sturluson markvörður Vals varði. Stuttu síðar fékk Nenad Zivanovic

Þegar 51 mínútna var liðinn af leiknum tók Jóhann Berg Guðmundsson aukaspyrnu en Kjartan Sturluson varði stórkostlega.

Aðeins andartaki síðar skallaði Marel Baldvinsson boltann niður fyrir Nenad Zivanovic sem var þó dæmdur rangstæður

Þegar tæpur klukkutími var búinn af leiknum átti Atli Sveinn Þórarinsson skalla í þverslána og yfir eftir aukaspyrnu Rene Carlsen.

Þegar 65 mínútur voru búnar af leiknum var Marel Baldvinsson enn og aftur í dauðafæri en honum tókst ekki að skora. Jóhann Berg gaf inn fyrir á Marel sem var einn gegn Kjartani en tókst ekki að skora.

Tveimur mínútum síðar skoraði Jóhann Berg Guðmundsson sitt fyrsta mark fyrir Blika í sumar. Atli Sveinn Þórarinsson braut á Nenad Zivanovic fyrir utan teig og Jóhann setti boltann undir vegginn og í netið fór hann.

Stuttu síðar gaf Jóhann inn fyrir á Marel sem tók Barry Smith á sem virtist ýta á bakið á Marel inn í teig og Blikar vildu fá vítaspyrnu en Jóhannes Valgeirsson var ekki á sama máli.

Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum átti Helgi Sigurðsson gott skot að marki Blika en Casper Jacobsen markvörður Blika varði.

Fátt markvert gerðist eftir þetta og Blikar því komnir áfram og það verðskuldað.


Breiðablik (4-4-2) Casper Jacobsen (M), Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Srdjan Gasic, Finnur Orri Margeirsson, Kristinn Jónsson, Nenad Petrovic, Guðmundur Kristjánsson, Arnar Grétarsson (F) (Steinþór Freyr Þorsteinsson, 76), Nenad Zivanovic (Magnús Páll Gunnarsson, 89), Jóhann Berg Guðmundsson, Marel Baldvinsson.
Ónotaðir varamenn: Olgeir Sigurgeirsson, Vignir Jóhannesson (M), Guðmann Þórisson, Alfreð Finnbogason, Haukur Baldvinsson.

Valur (4-4-2) Kjartan Sturluson (M), Birkir Már Sævarsson, Barry Smith, Atli Sveinn Þórarinsson (F), Rene Carlsen, Rasmus Hansen (Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, 57), Bjarni Ólafur Eiríksson (Einar Marteinsson, 75), Pálmi Rafn Pálmason, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Helgi Sigurðsson, Guðmundur Benediktsson (Albert Brynjar Ingason, 55).
Ónotaðir varamenn: Gunnar Einarsson, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Ágúst Bjarni Garðarsson (M)

Maður leiksins: Jóhann Berg Guðmundsson
Áhorfendur: 707 voru á leiknum.
Aðstæður: Völllurinn þokkalegur og gott veður.
Dómari: Jóhannes Valgeirsson.
Slapp
banner